Roy Evans gefur Drekunum góð ráð
Roy Evans, fyrrum framkvæmdastjóri Liverpool, hefur frá því snemma á þessu ári verið framkvæmdastjóra Wrexham innan handar og gefið honum góð ráð. Á dögunum var tilkynnt að framhald yrði á þessari vinnu Roy Evans. Hann grípur í þetta starf þegar hann er ekki að aðstoða John Toshack við þjálfun landsliðs Wales en hann er hægri hönd John.
Wrexham slapp naumlega við fall úr deildarkeppnini í vor og nú á að koma í veg fyrir að liðið lendi í sömu stöðu aftur. Forráðamenn Drekanna vonast til að góð ráð frá hinum margreynda Roy Evans nýtist liðinu vel á næstu leiktíð.
Roy Evans var framkvæmdastjóri Liverpool frá byrjun árs 1994, þegar hann tók við af Graeme Souness, til í nóvember 1998. Hann sagði þá af sér og eftirlét Gerard Houllier stjórn liðsins. Þeir tveir höfðu verið samverkamenn frá því þá um sumarið. Roy hefur ekki þjálfað félagslið frá því þá utan hvað hann stýrði Swindon um skamman tíma. Hann hætti þar eftir ósætti við stjórnarmenn félagsins. Víst er að Wrexham mun njóta góðs af góðum ráðum frá Roy Evans.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

