Darren Bent ráðlagt að fara til Liverpool
Darren Bent, sóknarmaður Charlton Athletic, íhugar nú hvert hann á að fara. Allt leit út fyrir að hann færi til West Ham United á dögunum. Félögin voru búin að semja um kaupverð upp á seytján milljónir sterlingspunda en Darren neitaði vistaskiptunum á síðustu stundu.
Eftir að neitunin lá fyrir, herma fréttir, að Liverpool og Tottenham Hotspur hafi reynt að véla Darren til sín. Það þykir líklegra að hann fari til Tottenham en honum hefur nú verið ráðlagt, af kunnum sóknarmanni, að ganga til liðs við Liverpool. Hér er um að ræða goðsögnina Gary Lineker sem fjallaði um Darren í enska dagblaðinu Sunday Telegraph.
"Það yrði frábært fyrir þróun hans sem leikmanns að vinna með manni eins og Rafa. Það væru líka góð tíðindi fyrir enska landsliðið."
Það ætti að koma í ljós á næstu dögum hvort Darren færir sig um set. Reyndar þykir ekki neinn vafi á því að Darren muni yfirgefa Charlton en þá er spurningin hvert hann muni fara. Fjölmiðar telja, sem fyrr segir, að hann muni fara til Tottenham því hann vilji vera áfram í höfuðstaðnum. Liverpool borg mun þó líka vera inni í myndinni.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

