Darren Bent hafnar West Ham
Darren Bent hafnaði tilboði West Ham og nú er talið líklegt að leið hans liggi annað hvort til Liverpool eða Tottenham. West Ham bauð hvorki meira né minna en 17 milljónir punda í kappann en Bent veit af áhuga mun sterkari liða á sér og því hafnaði hann boðinu. Charlton hefur gefið grænt ljós á brotthvarf hans ef tilboð upp á 14 milljónir punda berst í hann.
Bent er einungis 23 ára en hefur þegar skorað 92 mörk í 220 leikjum. Hann hefur skorað 31 mark í 68 Úrvalsdeildarleikjum með ekki sterkara liði en Charlton sem féll úr Úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Enskir leikmenn eru oftar en ekki dýrari en erlendir leikmenn en Bent gæti vel verið þess virði. Hann er fljótur, markheppinn, afburðaskallamaður og afgreiðir færin sín vel. Fyrst og fremst hefur hann sannað sig á meðal þeirra allra bestu í ensku Úrvalsdeildinni og nú er kominn tími til að hann sanni sig með stórliði. Vonandi mun sofandaháttur Liverpool gagnvart hinum velska þrælefnilega bakverði Gareth Bale sem fór frá Southampton til Tottenham ekki endurtaka sig og félagið kaupi þennan öfluga enska framherja. Ekki veitir af að styrkja liðið með "heimamönnum" sem eru vanir enska boltanum enda árangurinn þar síðri en í Meistaradeildinni evrópsku.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

