L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Krisztian Nemeth
Fæðingardagur:
05.01.1989
Fæðingarstaður:
Gyor, Ungverjaland
Fyrri félög:
MTK Hungaria FC
Kaupverð:
£0
Byrjaði / keyptur:
01.07.2007
Ungverska ungstirnið Krisztian Nemeth er einn mest umtalaðasti leikmaður varaliðs Liverpool eftir frábæra frammistöðu hans tímabilið 2007-2008. Þessi efnilegi sóknarmaður gekk til liðs við Liverpool ásamt Andras Simon sumarið 2007 eftir að hafa vakið athygli útsendara félagsins á Evrópumóti U-17 ára liða.
Eftir að hann hafði skrifað undir þriggja ára samning var hann ekki lengi að finna netmöskvana, en hann skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik gegn Manchester City. Ef þessi tvö mörk í hans fyrsta leik vöktu litla athygli, þá var því ekki að heilsa í næsta leik. Þar skoraði hann aftur tvennu gegn Everton og nú fóru stuðningsmenn félagsins að veita Ungverjanum þónokkra athygli.
Nemeth skoraði sitt níunda mark á tímabilinu í leik þar sem varaliðið tryggði sér titilinn á Anfield gegn Aston Villa í maí 2008. Síðar í þessum sama mánuði var hann kallaður upp í ungverska aðallandsliðið eftir að hann hafði tryggt U-19 ára landsliðinu þátttökurétt á Evrópumótinu.
Nemeth er sóknarmaður af Guðs náð, hann er mjög hreyfanlegur og er með góða boltatækni. Það er því ekki ofsögum sagt að búist er við miklu af Nemeth en hann á reyndar enn eftir að spila sinn fyrsta leik með aðalliði félagsins.
Fyrir leiktíðina, 2008-2009, tók hann þátt í nokkrum æfingaleikjum með liðinu á undirbúningstímabilinu og þótti standa sig með prýði. Talið var að hann myndi fá tækifæri með aðalliðinu á leiktíðinni en svo varð ekki og var það að mestu vegna meiðsla sem héldu honum frá stóran hluta tímabilsins.
Hann var lánaður til Blackpool í næst estu deild Englands, hann varð hins vegar fyrir því óláni að brjóta kinnbein sitt í fyrsta leik sínum með Blackpool og þurti að snúa aftur til Melwood fyrr en áætlað var.
Hugsanlegt er að Nemeth muni fá tækifæri á næstu leiktíð með aðalliði Liverpool en það eru bundnar miklar vonir við þennan efnilega framherja sem hefur tekið þátt í undirbúningnum með aðalliðinu fyrir komandi leiktíð.
Tölfræðin fyrir Krisztian Nemeth
Tímabil
Deild
Bikar
Deildarbikar
Evrópa
Annað
Alls
2008/2009
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
2009/2010
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
Samtals
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
0 - 0
Fréttir, greinar og annað um Krisztian Nemeth
Fréttir
20.08.2010 02:00 | Sf. Gutt
Krisztian Nemeth seldur
14.04.2010 22:35 | Ólafur Haukur Tómasson
Olympiakos ræðir við Aurelio
13.10.2009 22:40 | Ólafur Haukur Tómasson
Krisztian Nemeth að gera það gott
25.08.2009 11:54 | Grétar Magnússon
Nemeth og Simon lánaðir
19.08.2009 16:10 | Grétar Magnússon
Nemeth og Gulacsi skrifa undir nýja samninga
02.08.2009 07:00 | Sf. Gutt
Krisztian Nemeth ætlar sér stóra hluti
26.07.2009 17:31 | HI
Landslið Singapore rótburstað
30.04.2009 08:57 | Grétar Magnússon
Nemeth og Dalla Valle menn framtíðarinnar
29.01.2009 11:06 | Grétar Magnússon
Krisztian Nemeth meiddur
26.01.2009 15:26 | Grétar Magnússon
Nemeth og Lindfield lánaðir
Í nærmynd
30.07.2008
Það eru fjölmargir ungir og efnilegir leikmen ...
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Tímabilið 2010 / 2011
Leikmannaprófíll
Leikir & Úrslit
Leikmenn
Tölfræðin
Úrvalsdeildin
Leikjahornið
Næstu leikir
Úrslit
Leikur
Úrslit
Man Utd. -
LFC
11.feb. 12:45
LFC
- Brighton
19.feb. 16:30
Cardiff -
LFC
26.feb. 16:00
Leikur
Úrslit
LFC
- Tottenham
0 - 0
Wolves -
LFC
0 - 3
LFC
- Man Utd.
2 - 1
Vefkönnun
Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?
Daniel Agger
Craig Bellamy
Andy Carroll
Steven Gerrard
Martin Skrtel
Einhver annar
Skoða eldri kannanir
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir