Forsíða

Pistlahorn - Kóngurinn lengi lifi!



Árið 2011 er að renna sitt skeið á enda – árið sem er fyrsta heila árið í langan tíma sem við Liverpool aðdáendur getum horft með stolti fram á veginn. Félagið okkar er að spila skemmtilegan fótbolta og menn leggja sig fram. Þó að við aðdáendurnir séum ekki sáttir við öll úrslitin sem við höfum orðið vitni að á keppnistímabilinu þá getum við verið stoltir af því að liðið okkar er að spila fótbolta sem gaman er að horfa á.
 
Skítt með nokkur jafntefli gegn lélegri andstæðinum. Það sem skiptir máli núna er að við getum horft á stjórann sem stendur á hliðarlínunni í 90 mínútur og lifir sig inn í leikinn, oftar en ekki með bros á vor. Stjórann sem styður leikmenn sína í öllum viðtölum í fjölmiðlum, hvetur leikmenn sína til dáða og fær menn til að leggja sig fram fyrir félagið sem við elskum. Guð forði okkur frá því að þurfa nokkurn tímann aftur að horfa á liðið okkar spila þann fótbolta sem Roy Hodgson lét okkur spila þá fáu mánuði sem hann var við stjórn.
 
Þó að sparkspekingarnir í Sunnudagsmessunni segi að Kóngurinn muni ekki ná árangri með liðið vegna þess að þeir spili næntís fótbolta þá bæs ég á slíkar fullyrðingar. Í flestum leikjum tímabilsins höfum við verið að spila fótbolta þar sem boltinn gengur vel og liðið hefur verið að skapa sér fullt af marktækifærum. Liðið hefur spilað vel og verið betri aðillinn í leikjum gegn þeim liðum sem eru fyrir ofan okkur í deildinni. Við höfum að vísu tapað alltof mörgum stigum í jafnteflisleikunum sem flestir hefðu unnist með smá heppni.
 
Leikmannahópurinn er sterkur og leikmenn sem áður áttu einn og einn góðan leik hafa í vetur sýnt meiri stöðugleika, má þar nefna Leiva sem því miður er nú um stundir frá vegna meiðsla. Áður en hann meiddist var hann að spila geysilega vel og var klárlega að skipa sér í flokk með bestu varnarsinnuðu miðjumönnum deildarinnar. Skertl og Agger virðast ná enn betur saman og mistökum þeirra fækkar þannig að vörnin þéttist. Johnson er að sýna sitt besta, Kuyt og Maxi standa fyrir sínu þó þeir þurfi oft að verma bekkinn.
 
Þeir leikmenn sem keyptir hafa verið til félagsins eru smám saman að sanna sig og má nefna Enrique sem er búinn að vera mjög góður. Adam, Henderson og Downing eru kannski ekki nógu stöðugir í leik sínum en ég hef trú á því að það eigi eftir að lagast. Við vissum allir hvað Bellamy getur og leikgleði hans og baráttuandi smitar út frá sér svo unun er á að horfa. Suarez hefur spilað geysilega vel en verið óheppinn að hafa ekki nýtt færin sín betur. Þó að enska knattspyrnumafían hafi hlustað á vælið í Ferguson og hans mönnum, og það sé að leiða til þess að Suarez fari í langt keppnisbann þá kemur hann vonandi sterkari til baka. Carroll blessaður, hvað getur maður sagt - ég er enn dálítið efins um að hann eigi nokkurn tímann eftir að standa undir nafni sem framherji sem keyptur var á svo háa upphæð. Kannski hvílir það á honum eins og þungur baggi að sanna sig en ef Kónginum tekst ekki að rífa hann upp þá tekst engum það. Við eigum jú inni að fá Steven Gerrard í sínu besta formi til baka og þá hef ég fulla trú á að leikmenn fái aukið sjálfstraust og mörkin fari að koma á færibandi.
 
Það sást greinilega þegar Gerrard kom inn á í leiknum gegn Newcastle hvaða áhrif hann hefur á leik liðsins. Við eigum líka fullt af efnilegum leikmönnum sem Kóngurinn er óhræddur að nota ef með þarf, Spearing, Kelly, Flanagan, Coates, Robinson og fleiri hafa staðið sig með sóma þegar þeir hafa fengið tækifæri.
 
Ég held að eigendurnir þurfi ekki að rjúka til og kaupa nýja leikmenn nú í janúar. Gefum Kónginum Kenny bara meiri tíma með þennan hóp. Það eina sem þyrfti að gera væri að tryggja sér einn góðan markaskorara, kannski fá einn að láni, ef bann Suarez verður svona langt.
 
Við aðdáendurnir skulum styðja Kónginn og leikmennina eins og við getum á komandi mánuðum – hættum að vera með skítkast út í liðið og leikmenn þó ekki gangi allt eins og við óskum okkur, þá held ég að Kóngurinn og hans hirðmenn eigi eftir að skila okkur einhverjum dollum í hús, jafnvel strax í vetur.

Gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir það liðna.
 
Razor

Leikjahornið

Leikur Úrslit
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
LFC - Arsenal 03.mar. 12:45
Sunderland - LFC 10.mar. 15:00
Leikur Úrslit
LFC - Brighton 6 - 1
Man Utd. - LFC 2 - 1
LFC - Tottenham 0 - 0

Vefkönnun

Hvernig fer úrslitaleikur Liverpool og Cardiff?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin