Forsíða

Aðalfundur 2004

Fundargerð aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi, haldinn á Players, sunnudaginn 23. maí 2004 kl. 14:00.

Fundarsetning.

Sigursteinn Brynjólfsson, formaður Liverpolklúbbsins, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Guðmundur Pétursson var kjörinn fundarstjóri og Markús Einarsson fundarritari.

Skýrsla stjórnar.

Sigursteinn Brynjólfsson flutti skýrslu stjórnar. Í henni kom m.a. fram.:

- stjórnin skipti þannig með sér verkum eftir síðasta aðalfund:

o Varaform: Hallgrímur Indriðason

o Gjaldkeri: Kristmann Pálmason

o Ritari: Markús Einarsson

o Meðstjórnendur: Jón Óli Ólafsson, Sigurður Hjaltested og Jósep Svanur Jóhannsson.

- Jón Óli Ólafsson var skipaður ritstjóri Rauða Hersins. Alls komu út 4 tölublöð af Rauða Hernum á tímabilinu og stækkaði blaðið umtalsvert á árinu og litasíðum fjölgaði.

- á starfsárinu varð klúbburinn 10 ára og var starfið því óvenju fjölbreytt og umfangsmikið. M.a. afhenti stjórn klúbbsins Barnaspítala Hringsins treyju sem árituð var af öllum leikmönnum Liverppol, unnið er að ritun bókar um starfsemi klúbbsins frá upphafi og töluverðum tíma var eitt í að reyna að fá Liverpool FC hingað til lands nú í sumar. Því miður tókst það ekki að þessu sinni en vonandi kemur að því fyrr en síðar.

- skráningar í klúbbinn gengu vel og voru skráningar næstum jafn margar og árið á undan.

- jólagjöf ársins var trefill með merki Liverpoolklúbbsins og Liverpool FC sem ætlaður er til að hengja upp í bílrúður. Auk jólagjafarinnar fengu félagsmenn sent dagatal og í mars fengu þeir senda límmiða til að setja á númeraplötur.

- gerður var samstarfssamningur við 5 fyrirtæki á árinu. Þessi fyrirtæki eru Vífilfell, Úrval Útsýn, Players, Jói Útherji og Prisma Prentco. Eru þessum fyrirtækjum færðar bestu þakkir fyrir frábært samstarf á árinu.

- með samningi sínum við Players fluttist " heimavöllur " Liverpool-klúbbsins frá Ölveri á Players, en aðsetur klúbbsins hefur verið á Ölveri allt frá stofnun hans.

- heimasíðan – liverpool.is - er sem fyrr mikilvægasti upplýsingamiðill klúbbsins. Mikil aðsókn er að síðunni og þegar best lét fékk hún um 5.000 heimsóknir á dag. Guðmundur Þór Magnússon sem verið hefur vefsstjóri allt frá upphafi lét af þeim störfum á árinu og við starfi hans tók Guðmundur Stefánsson. Voru Guðmundi Magnússyni færðar þakkir fyrir frábær störf fyrir Liverpoolklúbbinn á undanförnum árum.

- alls var farið í 3 ferðir til að fylgjast með leikjum Liverpool og var þátttaka í þeim mjög góð. Sem fyrr voru ferðirnar skipulagðar í samvinnu við Úrval / Útsýn. Farið var á heimaleiki Liverpool gegn Arsenal, Wolves og Newcastle.

- árshátíð klúbbsins var haldin í lok febrúar og var hún að vanda vel sótt. Sem fyrr var hátíðin tvískipt. Fyrri partin var haldin barna- og unglingahátíð en um kvöldið var fullorðinshátíðin haldin í Leikhúskjallaranum. Í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins var árshátíðin sérlega glæsileg að þessu sinni og fjölmargir frábærir skemmtikraftar tróðu upp. Heiðursgestur hátíðarinnar var sigursælasti leikmaður Liverpool frá upphafi; Phil Neal. Auk Phil Neal kom hingað til lands David Miller, útvarpsmaður hjá Radio City í Liverpoolborg.

- á árinu stóð klúbburinn fyrir 5 fánadögum og voru þeir flestir mjög vel sóttir. Tveir voru haldnir á Players og einn á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.

Reikningar Liverpoolklúbbsins.

Sigursteinn Brynjólfsson kynnti reikninga klúbbsins. Í þeim kom fram að tekjur klúbbsins á starfsárinu voru 6.539.686 kr. og hagnaður af rekstri nam 152.172 kr.

Eignir klúbbsins 30. apríl 2004 námu alls 1.828.634 kr.

Umræður um reikninga.

Nokkrar fyrirspurnir bárust um reikningana og svaraði formaður þeim.

Síðan voru reikningar bornir upp til atkvæða og voru þeir samþykktir samhljóða.

Kosning stjórnar.

Formaður til tveggja ára:

Aðeins einn, Sigursteinn Brynjólfsson, var í kjöri og var hann einróma kjörinn formaður Liverpoolklúbbsins til tveggja ára.

Þrír stjórnarmenn til tveggja ára:

Eftirtaldir buðu sig fram til stjórnarsetu til næstu tveggja ára.

Markús Einarsson

Sigurður Hjaltested

Gunnar Gunnarsson

Voru þeir einróma kjörnir stjórnarmenn Liverpoolklúbbsins til tveggja ára.

Tveir varamenn til eins árs:

Eftirtaldir buðu sig fram:

Sigurður Reynisson

Guðmundur Hreiðarsson

Kristmann Pálmason

Kosið var milli þessara þriggja og féllu atkvæði þannig að Sigurður og Kristmann fengu 10 atkvæði hvor og Guðmundur Hreiðarsson 6 atkvæði. Sigurður og Kristmann voru því réttkjörnir varamenn í Liverpoolklúbbnum til eins árs.

Kosning endurskoðanda:

Stungið var upp á Birgi Haraldssyni og var hann kjörinn samhljóða.

Ákvörðun árgjalds.

Stjórn Liverpoolklúbbsins gerði tillögu um að árgjaldið yrði 2.500 kr., en það er sama upphæð og var á síðasta starfsári. Var það samþykkt samhljóða.

Önnur mál.

Markús Einarsson ræddi um hið fjölbreytta starf sem unnið væri í klúbbnum. Einnig ræddi hann nauðsyn þess að fá fleiri aðila til starfa fyrir klúbbinn ef halda ætti uppi jafn öflugu starfi og hingað til hefur verið.

Sigursteinn Brynjólfsson ræddi einnig um hið starfsemi klúbbsins og tók undir orð Markúsar um nauðsyn þess að fá fleiri til að starfa fyrir klúbbinn.

Fundarstjóri, Guðmundur Pétursson, þakkaði fundarmönnum góða fundarsetu og árnaði nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum.

Að lokum þakkaði Sigursteinn Brynjólfsson mönnum fyrir góðan og málefnalegan fund. Ennfremur bauð hann nýja stjórnarmenn velkomna til starfa og þakkaði þeim sem hætta í stjórn fyrir vel unnin störf.

Að því búnu sleit hann fundi kl 15:10

Markúa Einarsson

Fundarritari.

Til baka

Leikjahornið

Leikur Úrslit
LFC - Brighton 19.feb. 16:30
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
LFC - Arsenal 03.mar. 12:45
Leikur Úrslit
Man Utd. - LFC 2 - 1
LFC - Tottenham 0 - 0
Wolves - LFC 0 - 3

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin