| Sf. Gutt
Það bárust góðar meiðslafréttir úr herbúðum Liverpool í dag. Fjórir leikmenn sem hafa verið mislengi frá gátu hafið æfingar. Vonandi verða þeir sem fyrst leikfærir og tilbúnir í slaginn.
Um er að ræða þá Alisson Becker, Trent Alexander-Arnold, Diogo Jota og Stefan Bajcetic. Þrír þeir sem fyrstir eru nefndir eru búnir að vera meiddir síðustu vikurnar og það hefur munað um þá þó liðinu hafi gengið mjög vel.
Stefan er á hinn bóginn búinn að vera meiddur í um það bil eitt ár. Hann hefur þó komið við sögu í tveimur leikjum á leiktíðinni en það var í haust. Hann lofaði sérlega góðu á síðasta keppnistímabili þegar hann spilaði 19 leiki.
Nú er að vona að bati þeirra félaga hafi verið góður og engin bakslög verði nú þegar þeir koma aftur til leiks. Það munar um alla á lokasprettinum!
TIL BAKA
Góðar meiðslafréttir!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| HI
Aftur niður á við -
| Sf. Gutt
Diogo Jota meiddur -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins 28. maí 2024 -
| Sf. Gutt
Nýr talinn líklegur eftirmaður Jürgen Klopp! -
| Sf. Gutt
Mark númer 100! -
| Sf. Gutt
Markmiðið er að vinna alla leikina! -
| Sf. Gutt
Í rétta átt! -
| Sf. Gutt
Við erum vonsviknir!
Fréttageymslan