| Sf. Gutt

Gleðilegt sumar!


Liverpool klúbburinn á Íslandi óskar öllum lesendum Liverpool.is, nær og fjær, gleðilegs sumars og sólríkra daga. Um leið skal þakkað fyrir veturinn sem var að líða.

Segja má að veturinn hafi verið mjög góður fyrir Liverpool. Deildarbikarinn vannst á eftirminnilegan hátt eftir sigur á Chelsea á Wembley.
Liverpool hefur verið með í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn alla leiktíðina en það var kannski ekki reiknað með því fyrir keppnistímabilið. Lengi vel var liðið í baráttu um fjóra titla. Enn er möguleiki að tveimur titlum í sumar.  

Vonandi færir sumarið okkur öllum góða daga með blóm í haga og hagfellda tíð til sjós og lands
. Við óskum svo þess að tíðarfarið verði með besta móti hjá Liverpool Football Club með hækkandi sól og björtum sumarnóttum.

Njótið sumarins!


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan