| Sf. Gutt
Ruben Amorim vísar öllum fullyrðingum á bug þess efnis að hann hafi verið í viðræðum um að taka við sem framkvæmdastjóri Liverpool. Sky í Þýskalandi fullyrti á dögunum að Portúgalinn hefði gert munnlegt samkomulag við forráðamenn Liverpool. Ruben, sem er framkvæmdastjóri Sporting Lissabon, hafði þetta að segja um málið.
,,Ég hef ekki farið í neitt viðtal við forráðamenn Liverpool og ég hef ekki gert samkomulag við eitthvað félag. Það er einfaldlega ósatt. Ég er framkvæmdastjóri Sporting og vil vinna titla hérna. Ég hef ekki hitt forráðamenn annarra félaga. Engin samkomulög hafa verið gerð. Trúiði mér! Hættiði svo þessum söguburði. Ég mun ekki ræða þetta meira!"
Svo mörg voru þau orð! Sporting er sem stendur á toppnum í Portúgal með sjö stiga forystu á Benfica. Liðið er líka komið í úrslit í bikarkeppni Portúgals.
TIL BAKA
Ruben Amorim vísar öllu á bug!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| HI
Aftur niður á við -
| Sf. Gutt
Diogo Jota meiddur -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins 28. maí 2024 -
| Sf. Gutt
Nýr talinn líklegur eftirmaður Jürgen Klopp! -
| Sf. Gutt
Mark númer 100! -
| Sf. Gutt
Markmiðið er að vinna alla leikina! -
| Sf. Gutt
Í rétta átt! -
| Sf. Gutt
Við erum vonsviknir! -
| HI
Úr leik í Evrópudeildinni
Fréttageymslan