| Sf. Gutt

Niðurtalning - 3. kapítuli

+ Liverpool er að leika á sinni seytjándu leiktíð í Evrópukeppni sterkustu liða Evrópu. Á þessum seytján leiktíðum hefur liðið komist sjö sinnum í úrslitaleikinn.

+ Leikurinn í Aþenu verður 58. leikur Liverpool á leiktíðinni.

+ Leikurinn er fimmtándi Evrópuleikur liðsins á leiktíðinni.

+ Liverpool hefur notað tuttugu og sex leikmenn á Evrópuvegferð sinni til Aþenu.

+ Aðeins einn leikmaður, Xabi Alonso, hefur spilað alla leikina.

+ Tveir markverðir, Jose Reina og Jerzy Dudek hafa staðið í markinu.

+ Peter Crouch er markahæstur leikmanna Liverpool. Hann hefur skorað sjö Evrópumörk. Steven Gerrard og Sanz Luis Garcia hafa skorað þrívegis. Craig Bellamy, Robbie Fowler og John Arne Riise hafa skorað tvö mörk. Þeir Daniel Agger og Mark Gonzalez hafa skorað eitt mark hvor.

+ Markið hans Peter Crouch í 1:0 sigri Liverpool á PSV Eindhoven var sögulegt. Markið var merkilegt fyrir þær sakir að það var fjögurþúsundasta markið sem skorað hefur verið í Meistaradeildinni eftir að fyrst var leikið undir hennar nafni leiktíðina 1992/93.

+ Þeir Craig Bellamy, Jermaine Pennant og Mark Gonzalez léku í fyrsta skipti með aðalliði Liverpool í leiknum við Maccabi Haifa á Anfield Road. Þetta var fyrsti leikur Liverpool á leiktíðinni.

+ Þeir Craig og Mark skoruðu báðir í leiknum og færðu Liverpool 2:1 sigur. Það var í fyrsta sinn frá árinu 1928 sem tveir leikmenn skora í fyrsta leik sínum með Liverpool.

+ Liverpool og Chelsea mættust í Evrópukeppni þriðju leiktíðina í röð.

+ Liverpool er búið að heimsækja fimm lönd á Evrópuferðalagi sínu á leiktíðinni. Grikkland verður sjötta landið.

+ Liverpool lék í fyrsta sinn gegn liði frá Ísrael. Liðið lék þó aldrei í Ísrael því útileikurinn við Maccabi Haifa var færður til Úkraínu.

+ Liverpool fór tvær ferðir til Hollands. Liðið mætti PSV Einhoven bæði í riðlakeppninni og átta liða úrslitum.

+ Liverpool og AC Milan mætast í annað sinn á þremur árum í úrslitaleik um Evrópubikarinn. Liverpool vann ógleymanlegan sigur á AC Milan í Istanbúl fyrir tveimur árum.

+ Þá eins og nú mætti Liverpool Chelsea í undanúrslitum.

+ Þetta verður í fimmta sinn sem sömu lið spila tvisvar til úrslita um Evrópubikarinn.

+ Liverpool leikur í fimmtu höfuðborg Evrópu í úrslitaleik um Evrópubikarinn þegar liðið það gengur á hólm við AC Milan í Aþenu.

+ Liverpool vann Evrópubikarinn í Róm árið 1977 og varði hann í Lundúnum árið eftir. Árið 1981 vannst Evrópubikarinn í París. Evrópubikarinn vannst í fjórða sinn og annað sinn í Róm árið 1984. Liverpool tapaði svo úrslitaleiknum 1985 í Brussel. Liverpool vann Evrópubikarinn til eignar í Istanbúl árið 2005 en sú borg er ekki höfuðborg.

+ Liverpool hefur í öll fimm skiptin, sem liðið hefur unnið Evrópubikarinn, leikið í hinum margfrægu rauðu búningum sínum. Andstæðingarnir hafa alltaf klæðst alhvítu. Sami litarháttur verður viðhafður í Aþenu á miðvikudagskvöldið!!!!!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan