| Sf. Gutt

Af EM

Átta liða úrslitum Evrópumóts landsliða er lokið. Tveir fulltrúar Liverpool skoruðu. Annar komst áfram en hinn er kominn í sumarfrí.

Spánverjar unnu Sviss 3:1 í vítaspyrnukeppni eftir 1:1 jafntefli. Xherdan Shaqiri jafnaði leikinn fyrir Sviss og var mjög góður eins og hann var allt mótið. Thiago Alcantara kom inn á sem varamaður hjá Spánverjum.

Ítalir komust í undanúrslit eftir 2:1 sigur á Belgíu. Þetta var án efa stórleikur átta liða úrslitanna. 

Danir unnu Tékka 2:1 og eru komnir þetta langt eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum. Maögnuð famganga hjá frændum okkar.



England tryggði sér síðasta sætið í undanúrslitum með stórsigri á Úkraínu. Harry Kane, framherji Tottenham, skoraði tvö mörk. Harry Maguire og Jordan Henderson skoruðu sitt markið hvor. Jordan kom inn á sem varamaður og skoraði með skalla eftir horn. Þetta var fyrsta landsliðsmark hans. 

Leikirnir í undanúrslitunum eru þessir.

Ítalía v Spánn
Danmörk v England

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan