| Sf. Gutt

Þrír markmenn semja

Núna það sem af er sumri hafa þrír af markmönnum Liverpool framlengt samninga sína við félagið. Um er að ræða þá Caoimhin Kelleher, Adrián San Miguel og Liam Hughes.


Núna í dag skrifaði Caoimhin Kelleher undir nýjan samning við Liverpool. Írinn lék mjög vel í þau skipti sem hann fékk tækifæri með aðalliði Liverpool á síðasta keppnistímabili. Hann er búinn að spila níu leiki með aðalliði Liverpool. Caoimhin spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Íra snemma í þessum mánuði.


Adrián San Miguel undirritaði nýjan samning um daginn. Spánverjinn er búinn að vera hjá Liverpool í tvö ár. Hann hefur leikið 24 leiki fyrir hönd Liverpool. Hann tryggði Liverpool Stórbikar Evrópu 2019 með því að verja í vítaspyrnukeppni Liverpool og Chelsea. Hann vann svo Heimsmeistarakeppni félagsliða seinna það ár og varð svo Englandsmeistari í fyrra. 


Fyrr í mánuðinum gerði ungliðinn Liam Hughes nýjan samning við Liverpool en hann kom frá Celtic í janúar. Liam hefur einu sinni verið varamaður hjá aðalliði Liverpool. Hann hefur spilað með undir 21. árs liði Norður Íra og núna í vor var hann valinn í aðalliðshópinn. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan