| Grétar Magnússon

Lok tímabilsins

Loksins vitum við hvenær síðustu leikir Liverpool á tímabilinu fara fram en dagsetningar voru staðfestar á leikjunum við Man Utd og Burnley í dag.

Vonandi verða stuðningsmenn Manchester liðsins til friðs fimmtudaginn 13. maí en þá mæta okkar menn á Old Trafford. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Útileikur við Burnley verður næst síðasti deildarleikurinn á tímabilinu og hefur hann verið settur á miðvikudaginn 19. maí einnig klukkan 19:15.

Lokaleikur tímabilsins er svo gegn Crystal Palace á Anfield og þá mega 10.000 áhorfendur vera viðstaddir. Mikið verður ánægjulegt að sjá áhorfendur á vellinum á ný !



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan