| Sf. Gutt

Mohamed Salah með nýtt félagsmet!


Mohamed Salah setti nýtt félagsmet á móti Watford. Með fernunni er hann búinn að skora 36 mörk á þessu keppnistímabili sem er félagsmet fyrir leikmann á sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool. Mörkin hefur hann skorað í 41 leik.


Síðasti leikmaður leikmaður Liverpool til að skora yfir 30 mörk á sinni fyrstu leiktíð var Fernando Torres. Hann skoraði 33 mörk á leiktíðinni 2007/08.  

Mohamed er markahæstur í Úrvalsdeildinni sem stendur með 28 mörk í 30 leikjum. Harry Kane framherji Tottenham kemur honum næstur með 24 mörk. 

Hér má skoða myndir af mörkunum fjórum sem Mohamed Salah skoraði á móti Watford. 



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan