Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku
Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Ellefti í röðinni er Dirk Kuyt.Nafn: Dirk Kuyt.
Fæðingardagur: 22.07.1980.
Fæðingarstaður: Katwijk í Hollandi.
Staða: Framherji.
Félög á ferli: FC Utrecht, Feyenoord og Liverpool.
Fyrsti landsleikur: 03.09.2004 gegn Liechtenstein.
Landsleikjafjöldi: 63.
Landsliðsmörk: 15.
Leikir með Liverpool: 200.
Mörk fyrir Liverpool: 51.
Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Á þessari erfiðu leiktíð telst Dirk Kuyt hafa verið með skárri leikmönnum Liverpool. Hann var lengi í gang en lék vel í kringum áramótin og fram á árið. Hann var þó ekki atkvæðamikill á lokakaflanum.
Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er markaskorari! En líklega er helsta einkenni hans hinn ótrúlegi baráttuvilji. Úthald hans er með hreinum ólíkindum og hann gefst aldrei upp. Sumir telja að hann gæti náð langt á langhlaupum!
Hver er staða Dirk í landsliðinu? Dirk hefur verið fastamaður í liðinu frá því fyrir úrslitakeppni Evrópukeppni landsliða fyrir tveimur árum. Hann byrjar svo til hvern einasta leik og hefur haldið stöðu sinni.
Hvað um Holland? Holland vann riðil sinn í undankeppninni af miklu öryggi. Liðið er vel mannað og ef vel tekst til er alls ekki útilokað að það geti náð langt í þessari keppni.
Aþjóðlegir titlar Hollands: Evrópumeistarar landsliða 1988.
Besti Hollendingur allra tíma? Johann Cruyff. Þessi snillingur hóf ferilinn á unga aldri með Ajax áður en hann lagði heiminn að fótum sér með Barcelona. Endaði svo ferilinn heima í Hollandi. Vann þó aldrei stórtitil með hollenska landsliðinu.
Vissir þú? Pabbi hans Dirk var sjómaður og strákurinn vildi feta í sömu fótspor en hann hætti við þegar það fór að bóla á knattspyrnuhæfileikum hans.
Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

