Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku
Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Tíundi í röðinni er Jose Reina.Nafn: Jose Reina.
Fæðingardagur: 31.08.1982.
Fæðingarstaður: Madríd á Spáni.
Staða: Markvörður.
Félög á ferli: Barcelona, Villareal og Liverpool.
Fyrsti landsleikur: 17.08.2005 gegn Úrúgvæ.
Landsleikjafjöldi: 20.
Landsliðsmörk: 0.
Leikir með Liverpool: 259.
Mörk fyrir Liverpool: 0.
Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Stuðningsmenn Liverpool hafa flestir valið Jose Reina sem besta leikmann Rauða hersins á síðasta keppnistímabili. Jose lék frábærlega frá fyrsta leik til hins síðasta og þó hann hafa stundum fengið færri mörk á sig þá var þetta líklega besta leiktíð hans á Englandi.
Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er gríðarlega góður markvörður. Trúlega er helsti styrkur hans hversu góðar staðsetningar hans eru. Eins eru útspörk hans með því allra nákvæmasta sem sést. Vítaspyrnubani er hann með sanni og hefur unnið tvær vítaspyrnukeppnir fyrir Liverpool. Svo er kappinn alltaf sallarólegur.
Hver er staða Jose í landsliðinu? Þó svo að Jose Reina sé einn besti markvörður í Evrópu þá verður hann að sætta sig við að að vera varamarkvörður í spænska landsliðinu. Hinn frábæri Iker Casillas er fyrsti valkostur í spænska landsliðinu og líklega er hann óumdeildur í þeirri stöðu. Væri Jose ekki spænskur er ekki ólíklegt að hann stæði í marki einhvers landsliðs að staðaldri.
Hvað um Spán? Lið Spánverja er geysilega sterkt og flestir sparkspekingar telja liðið eitt af þeim sem er hvað sigurstranglegast. Liðið er ríkjandi Evrópumeistari og það er ekki nokkur vafi á því að í herbúðum þess er stefnt á Heimsmeistaratitilinn í Suður Afríku.
Aþjóðlegir titlar Spánverja Evrópumeistarar landsliða 1964 og 2008.
Besti Spánverji allra tíma? Alfredo Di Stéfano. Hann var reyndar fæddur í Argentínu og hóf feril sinn þar í landi. Real Madrid náði honum svo og þar varð hann goðsögn eftir að hafa raðað inn mörkum. Hann fékk spænskan ríkisborgararétt og gat sér gott orð með landsliðinu. Alfredo er einfaldlega einn besti knattspyrnumaður allra tíma.
Vissir þú? Pabbi hans Jose Reina, Miguel Reina, var mjög góður markvörður og lék á sínum tíma með Atlético Madrid.
Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

