Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku

Nafn: Fernando Torres.
Fæðingardagur: 20.03.1984.
Fæðingarstaður: Madríd á Spáni.
Staða: Sóknarmaður.
Félög á ferli: Atletico Madrid og Liverpool.
Fyrsti landsleikur: 06.09.2003 gegn Portúgal.
Landsleikjafjöldi: 73.
Landsliðsmörk: 24.
Leikir með Liverpool: 116.
Mörk fyrir Liverpool: 72.
Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Fernando sýndi snilli sína, eins og hann hefur gert frá því hann kom frá Spáni, þegar hann var leikfær og endaði sem markakóngur Liverpool. Meiðsli settu þó stórt strik í reikning hans og þar með Liverpool. Líklega hefði Liverpool vegnað mun betur ef Fernano hefði verið meira inni á vellinum.
Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann hefur flest það til að bera sem sóknarmaður í hæsta gæðaflokki þarf að hafa. Hann er sparkviss, sterkur skallamaður, fljótur og ekki síst geysilega duglegur. Fernando er líka mjög yfirvegaður og þar kemur honum til góða að hann varð lykilmaður í liði Atlético Madrid innan við tvítugt. Hann býr nefnilega yfir mikilli reynslu þrátt fyrir ungan aldur.
Hver er staða Fernando í landsliðinu? "Strákurinn" spilaði sinn fyrsta landsleik þegar hann var aðeins 19 ára og hann hefur verið fastamaður í landsliðshópnum alla tíð síðan. Hann er einfaldlega einn af bestu knattspyrnumönnum Spánar um þessar mundir. Kannski jafnvel sá besti?
Hvað um Spán? Lið Spánverja er geysilega sterkt og flestir sparkspekingar telja liðið eitt af þeim sem er hvað sigurstranglegast. Liðið er ríkjandi Evrópumeistari og það er ekki nokkur vafi á því að í herbúðum þess er stefnt á Heimsmeistaratitilinn í Suður Afríku.
Aþjóðlegir titlar Spánverja Evrópumeistarar landsliða 1964 og 2008.
Besti Spánverji allra tíma? Alfredo Di Stéfano. Hann var reyndar fæddur í Argentínu og hóf feril sinn þar í landi. Real Madrid náði honum svo og þar varð hann goðsögn eftir að hafa raðað inn mörkum. Hann fékk spænskan ríkisborgararétt og gat sér gott orð með landsliðinu. Alfredo er einfaldlega einn besti knattspyrnumaður allra tíma.
Vissir þú? Til að byrja með spilaði Fernando Torres í marki. Einu sinni fékk hann boltann framan í sig og við það brotnuðu tennur í honum. Þá hætti hann í marki og færði sig framar á völlinn! Örlagaríkt atvik!
Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

