| Sf. Gutt

Evrópumeistar Spánverja og Liverpool!

Spánverjar urðu á dögunum Evrópumeistarar í knattspyrnu. Liverpool átti fjóra leikmenn í landsliðshópnum og tveir léku með í úrslitaleiknum. Hér er ýmis fróðleikur um Evrópumeistarana.

  • Úrslitakeppni Evrópumóts landsliða fór fram í 13. sinn.
  • Úrslitakeppnin fór fram í Austurríki og Sviss.
  • Þeir Fernando Torres, Xabi Alonso, Alvaro Arbeloa og Jose Reina voru í landsliðshópi Spánverja.
  • Þeir spiluðu allir með Spánverjum á Evrópumótinu.
  • Fernando Torres skoraði sigurmark Spánverja í úrslitaleiknum þegar Spánverjar unnu Þjóðverja 1:0 í Vínarborg.
  • Xabi Alonso kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum.
  • Þetta var í annað sinn sem Spánverjar vinna Evrópukeppni landsliða. Áður unnu þeir keppnina árið 1964.
  • David Villa, leikmaður Valencia, varð markakóngur með fjögur mörk.
  • Xavi Hernández, leikmaður Barcelona, var kostinn besti maður keppninnar.
  • Fernando Torres var valinn í úrsvalslið keppninnar.
  • Leikmenn Liverpool hafa aldrei áður unnið Evrópukeppni landsliða.
  • Daninn Torben Piechnik (1992) og Þjóðverjarnir Markus Babbel og Christian Ziege (1996) voru í sigurliðum í Evrópukeppni landsliða en það var áður en þeir gengu til liðs við Liverpool.
  • Einn leikmaður Liverpool hefur orðið markakóngur í Evrópukeppni landsliða. Það var Milan Baros. Hann skoraði fimm mörk í úrslitakeppninni árið 2004.

Evrópumeistar Spánverja 2008

Fernando Torres: 5 leikir - 2 mörk.

Xabi Alonso: 4 leikir.

Alvaro Arbeloa: 1 leikur.

Jose Reina: 1 leikur.

 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan