Fernando Torres færði Spánverjum Evrópumeistaratitilinn
Spánverjar urðu í kvöld Evrópumeistara landsliða í annað sinn eftir 1:0 sigur á Þjóðverjum í þrettánda úrslitaleik keppninnar. Síðast vann Spánn keppnina 1964.
Fernando Torres átti frábæran leik og skoraði sigurmarkið. Xabi Alsono kom við sögu sem varamaður og stóð fyrir sínu. Þeir Jose Reina og Alvaro Arbeloa voru á meðal varamanna.
Þjóðverjar komu gríðarlega ákveðnir til leiks á Ernst Happel leikvanginum og það var greinilegt að þeir ætluðu ekki að láta Spánverja ná upp sínu góða samspili. Strax í upphafi munaði litlu að Miroslav Klose kæmist í færi eftir mistök í vörn Spánverja. Hinu megin varð Jens Lehman að taka á honum stóra sínum við a verja frá eigin manni. Eftir fyrsta stundarfjórðunginn náðu Spánverjar áttum og náðu smá saman undirtökunum. Fernando Torres var gríðarlega grimmur og duglegur í framlínunni og það var greinilegt að varnarmönnum Þjóðverja stóð stuggur af honum. Á 22. mínútu var hann nærri búinn að koma Spánverjum yfir. Sergio Ramos sendi fyrir frá hægri og Fernando stökk hæst í teignum en skalli hans fór í stöng. En Fernando skoraði á 33. mínútu. Xavi Hernández sendi þá góða sendingu upp að vítateig Þjóðverja. Fernando elti boltann af harðfylgi og komst framhjá varnarmanni inn á vítateiginn hægra megin. Jens Lehmann kom út á móti honum en Ferndando sá við honum og lyfti boltanum yfir hann og í markið. Frábær afgreiðsla og stuðningsmenn Liverpool könnuðust vel við þessi vinnubrögð hjá "Stráknum." Spánverjar voru sterkara liðið fram að hálfleik.
Þjóðverjar gefast aldrei upp og náðu góðum kafla framan af síðari hálfleik. Michael Ballack komst í gott færi eftir mistök í vörn Spánverja en skot hans fór framhjá. Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, sendi Xabi Alonso til leiks á 63. mínútu í stað Cesc Fabregas. Xabi stóð sig vel á miðjunni og róaði leikinn eins og honum var líklega ætlað að reyna að gera. Mínútu síðar varði Jens frábærlega skalla frá Sergio Ramos. Andres Iniesta var svo nærri búinn að skora en varnarmaður bjargaði á síðustu stundu. Luis tók Fernando Torres af velli á 78. mínútu en hann var sannarlega búinn að skila sínu. Þjóðverjar náðu ekkert að ógna Spánverjum á lokakafla leiksins og allt gekk af göflunum af fögnuðu hjá þeim rauðklæddu þegar flautað var til leiksloka. Spánverjar voru orðnir Evrópumeistarar landsliða í annað sinn og líklega geta allir verið sammála um að þeir eru verðugir sigurvegarar.
Iker Casillas, markvörður og fyrirliði spænska liðsins, tók við Evrópubikarnum eftir leik og líklega verður þjóðhátíð á Spáni næstu daga og vikur. Þessi titill var langþráður fyrir Spánverja enda hefur stórtitilll ekki ratað til Spánar í 44 ár. Við stuðningsmenn Liverpool brosum líka og vonum að afrek Spánverjanna okkar virki vel á liðið okkar á komandi leiktíð. Mikið vill jú meira!
Spánn: Casillas, Sergio Ramos, Puyol, Marchena, Capdevila, Senna, Iniesta, Fabregas (Alonso 63. mín.), Xavi, Silva (Cazorla 66. mín.) og Torres (Guiza 78. mín.). Ónotaðir varamaður: Reina, Reina, Albiol, Fernando Navarro, Villa, Sergio Garcia, Arbeloa, Juanito og De la Red.
Mark Spánverja: Fernando Torres (33. mín.).
Gul spjöld: Iker Casillas og Fernadno Torres.
Þýskaland: Lehmann, Friedrich, Metzelder, Mertesacker, Lahm (Jansen 46. mín.), Hitzlsperger (Kuranyi 58. mín.), Frings, Podolski, Ballack, Schweinsteiger og Klose (Gomez 79. mín.). Ónotaðir varamenn: Enke, Adler, Fritz, Westermann, Rolfes, Neuville, Trochowski, Borowski og Odonkor.
Gul spjöld: Michael Ballack og Kevin Kuranyi.
Áhorfendur á Ernst Happel leikvanginum: 51,428
Maður leiksins samkvæmt UEFA: Fernando Torres.
Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu BBC.
Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu UEFA.
Hér eru myndír úr leiknum af vefsíðu Guardian.


Spánverjar Evrópumeistarar landsliða 2008
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

