Emre Can

Fæðingardagur:
12. janúar 1994
Fæðingarstaður:
Frankfurt, Þýskalandi
Fyrri félög:
SV Blau-Gelb Frankfurt, Eintracht Frankfurt, Bayern Munchen, Bayer Leverkusen
Kaupverð:
£ 10000000
Byrjaði / keyptur:
03. júlí 2014
Upplýsingar á LFChistory.net
Skoða

Emre Can hefur spilað fyrir öll yngri landslið Þýskalands og var fyrirliði U-17 ára liðsins á HM 2011.  Hann þykir öflugur miðjumaður og getur leikið í öllum stöðum á miðjunni, hvort sem varnar- eða sóknarsinnaður leikmaður.  Einnig hefur hann brugðið sér í hlutverk vinstri bakvarðar og miðvarðar þegar á hefur þurft að halda.

Hann hóf ferilinn hjá SV Blau-Gelb Frankfurt og gekk svo til liðs við Eintracht Frankfurt.  Árið 2009 tóku útsendarar Bayern Munchen eftir honum og fengu hann til liðs við félagið.  Hann var svo seldur til Bayer Leverkusen sumarið 2013 en Munchenar stórveldið hafði ákveðna klausu í þeim kaupsamningi sem leyfðu þeim að nýta sér kauprétt á Can síðar.  Er það til marks um að þeir voru ekki alveg til í að sleppa takinu á þessum efnilega leikmanni.

En Liverpool kom til leiks sumarið 2014 og sýndi Can mikinn áhuga, því fór svo að tilkynnt var um kaupin í lok maí og í byrjun júlí var hann formlega tilkynntur sem leikmaður félagsins.  ,,Emre Can er ein skærasta stjarna þýskrar knattspyrnu," sagði stjórnarformaður Bayern Munchen Karl-Heinz Rumenigge árið 2009 þegar félagið keypti hann.  Þegar hann var svo seldur til Leverkusen sagði hann:  ,,Með þessu skrefi vonumst við til þess að hann fái nægan tíma til að spila knattspyrnu, líkt og Toni Kroos gerði hjá Leverkusen, Philipp Lahm hjá Stuttgart og David Alaba hjá Hoffenheim gerðu."

Can stóð sig mjög vel hjá Leverkusen á síðasta tímabili, bæði í deild og Meistaradeild en í þeirri síðarnefndu spilaði hann sinn fyrsta leik gegn Manchester United á Old Trafford.  Í 32 leikjum í öllum keppnum skoraði hann fjögur mörk og átti fjórar stoðsendingar en hann spilaði iðulega sem varnarsinnaður miðjumaður undir stjórn Sami Hyypia.

Tölfræðin fyrir Emre Can

Tímabil Deild Bikar Deildarbikar Evrópa Annað Alls
2014/2015 27 - 1 6 - 0 3 - 0 4 - 0 0 - 0 40 - 1
2015/2016 30 - 1 0 - 0 5 - 0 14 - 1 0 - 0 49 - 2
2016/2017 32 - 5 2 - 0 6 - 0 0 - 0 0 - 0 40 - 5
2017/2018 26 - 3 2 - 0 0 - 0 10 - 3 0 - 0 38 - 6
Samtals 115 - 10 10 - 0 14 - 0 28 - 4 0 - 0 167 - 14

Fréttir, greinar og annað um Emre Can

Fréttir

Í nærmynd

Skoða önnur tímabil