Steven Irwin

Fæðingardagur:
29. september 1990
Fæðingarstaður:
Liverpool
Kaupverð:
£ 0
Byrjaði / keyptur:
01. júlí 2008

Steven Irwin er fjölhæfur leikmaður sem kom úr unglingastarfi Akademíunnar árið 2008 en þá hafði hann verið hjá Akademíunni í níu ár.  Þessi varnarsinnaði miðjumaður vakti fyrst athygli þegar hann kom inná gegn Manchester United árið 2006 í úrslitaleik FA Unglingabikarsins.  Síðan þá hefur hann verið fyrirliði U-18 ára liðsins sem og varaliðsins.

Irwin er alhliða leikmaður sem býr yfir mörgum eiginleikum, hann er góður á boltann, getur tæklað og hefur mikla leiðtogahæfileika.

,,Ég myndi segja að mín besta staða sé á miðri miðjunni, en ég get gert vel í hægri bakverði líka," sagði Irwin, sem er fæddur í Childwall.

,,Ég hef spilað í hverri einustu stöðu síðan ég kom til félagsins.  Ég spilaði einu sinni í marki gegn Úlfunum.  Markvörðurinn meiddist eftir 10 mínútur, ég varði marga bolta þannig að ég ætti að geta velt Pepe Reina úr sessi fljótlega !"

Utan vallar er Irwin mikill stuðningsmaður Liverpool.  Hann sá sinn fyrsta bikarúrslitaleik árið 1996 og hefur ekki misst af neinum slíkum síðan þá.

Tölfræðin fyrir Steven Irwin

Tímabil Deild Bikar Deildarbikar Evrópa Annað Alls
2010/2011 0 - 0 0 - 0 0 - 0 0 - 0 0 - 0 0 - 0
Samtals 0 - 0 0 - 0 0 - 0 0 - 0 0 - 0 0 - 0

Fréttir, greinar og annað um Steven Irwin

Fréttir

Í nærmynd

Skoða önnur tímabil