Forsíða

Steven Gerrard

Steven Gerrard er einn af þeim leikmönnum sem vakið hafa hvað mesta athygli í ensku knattspyrnunni á liðnu ári. Hann hefur bæst í hóp þeirra ungu leikmanna sem hafa alist upp hjá Liverpool og komist alla leið í aðallið félagsins. Steven er fæddur í Whiston einu úthverfa Liverpool 30. maí 1980 og fór snemma að sparka bolta með staðarliði sínu Whiston Juniors. Hann ólst upp í góðri trú sem aðdáandi Liverpool og tóku útsendarar félagsins eftir honum níu ára gömlum og fengu hann til liðs við uppáhaldsliðið sitt. Hann upplifði nú draum hvers Liverpoolaðdáenda. Þegar hann lék sér í fótbolta á götunni vildi hann yfirleitt vera Ian Rush, John Barnes eða Peter Beardsley. Gerrard lék með öllum yngi liðum Liverpool og ungur að árum komst hann í varaliðið. En hæfileikum hans var ekki veitt verðskulduð athygli allsstaðar. "Mér var neitað um pláss í Lilleshall - knattspyrnuskóla enska knattspyrnusambandsins og ég komst aldrei í U-15 ára landsliðið. Mér var sagt að ég væri ekki nógu góður vegna þess að að ég væri of lítill. Ég óx síðan hratt og mátti rekja mörg meiðsli mín til þess, í baki og liðböndum. Þegar ég var 15 ára gamall þá var ég jafnhár og Owen en hann er eins og dvergur við hliðina á mér núna". Liverpool þurfti að halda aftur af honum á unglingsárum sínum vegna meiðsla. Hann er enn spilandi í dag vegna þess hve gætilega þeir sáu um hann. Vaxtarverkir gerðu það að verkum að hann gat aðeins leikið 20 leiki á tveimur árum frá 14 ára til 16 ára aldurs.

Í lok nóvember 1998 átti Liverpool leik gegn Celta Vigo á Spáni í Evrópukeppni félagsliða. Meiðsli og leikbönn gerðu það að verkum að Steven og félagi hans Stephen Wright fóru með liðinu til Spánar en léku hvorugur með. Nokkrum dögum síðar þann 29. nóvember lék Gerrard sinn fyrsta leik með aðalliðinu þegar hann kom inná fyrir Heggem og lék síðustu tvær mínúturnar þegar Liverpool lagði Blackburn 2:0 á Anfield (rúmir 90 félagar úr Liverpoolklúbbnum á Íslandi voru vitni að því á Anfield). Hann lét finna vel fyrir sér og kom sjö sinnum við boltann og vann eina tæklingu á þessum örstutta tíma. Uppbyggingarstarf Houllier hjá Liverpool var rétt að byrja og ferill Gerrard að hefja flugið. Redknapp var í banni í næsta leik gegn Tottenham og Gerrard tók sæti hans á miðjunni. Hann lék 55 mínútur en Liverpool var ekki í sem besta formi og tapaði 2-1 á White Hart Lane. Houllier hélt tryggð við Gerrard fyrir seinni leikinn gegn Celta Vigo og hann þakkaði fyrir sig og skilaði frammistöðu sem var álitin sú besta á vellinum. En það kom ekki í veg fyrir annað tap.

Gerrard lék í sínum fyrsta nágrannaslag gegn Everton 3. apríl 1999 og aftur voru íslenskir Liverpoolaðdáendur fjölmennir. Hann lék aðeins í hálftíma en á þeim tíma tókst honum tvisvar að bjarga á línu og koma í veg fyrir að Everton næði stigi eða stigum úr leiknum. Hann var stoltur af frammistöðu sinni: "Þetta var sannkölluð eldskírn, hraðinn var rosalegur og maður hafði lítinn tíma til þess að hugsa. Ef ég hefði einbeitt mér of mikið að leiknum þá hefði ég örugglega klipið mig til þess að ganga úr skugga um að þetta væri bara ekki draumur. Ég kem frá fjölskyldu sem er vaðandi í Liverpoolaðdáendum en ég þekki einnig mikið af Evertonaðdáendum. Það var eins og þetta væri að koma fyrir einhvern annan en mig." Steven lék 13 leiki á fyrsta tímabili sínu sem hefðu líklega orðið fleiri ef hann hefði ekki átt við meiðsli að stríða.

Gerrard hafði staðið sig framar björtustu vonum miðað við ungan aldur. Hann var jú aðeins 18 ára. Þrisvar sinnum valdi staðarblaðið The Liverpool Echo hann besta mann leiksins. Hann sýndi fjölhæfni og þroska að takast á við ólíkar stöður á vellinum. Að þessu sinni var ekki hægt að horfa framhjá honum varðandi val í landsliðið. Gerrard varð fyrirliði u-18 ára landsliðsins undir stjórn Howard Wilkinson. Hann lék síðan sinn fyrsta leik fyrir u-21 árs landsliðið gegn Luxemborg 3. september 1999. Hann skoraði fyrsta mark leiksins í 5-0 sigri og var jafnframt valinn maður leiksins.

Gerrard rekinn útaf gegn EvertonHoullier treysti Gerrard til að vera í byrjunarliðinu í upphafi tímabilsins 1999-2000. "Þetta er Liverpool. Ég er 19 ára gamall svo að ég get varla beðið um meira. Stjórinn sagði mér í sumar að ég myndi leika um 20 leiki þetta tímabil og ég var mjög sáttur við það. Ég er strax búinn að leika 6-7 leiki og hef staðið mig ágætlega. Ég var sérstaklega ánægður með frammistöðu mína gegn Leeds og Arsenal. Þetta voru tveir bestu leikirnir okkar hingað til en mér fannst ég ekki standa mig vel gegn Man Utd. Ég gat ekki neitt!" Liverpool tapaði 2-3 fyrir Man Utd á Anfield 11. september og Gerrard rekinn útaf gegn Everton það var athyglisvert að hlusta á ungan mann sem lék fyrir ári síðan með u-19 ára liði Liverpool kvarta hástöfum yfir frammistöðu sinni í einum magnaðasta leik tímabilsins. En stjóri hans hafði ástæðu til að kvarta undan stráknum er Liverpool mætti Everton tveimur vikum síðar: "Að vera rekinn útaf gegn Everton var lægsti punkturinn á ferli mínum. Ég hafði leikið alla leikina hingað til við hlið Jamie Redknapp en nú taldi stjórinn að Didi Hamann væri tilbúinn. Hann setti hann í byrjunarliðið á minn kostnað og ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Þegar hann las upp byrjunarliðið var ég með kökk í hálsinum. Hugarfarið mitt yfir þenann leik var því ekki á réttum nótum og útafreksturinn var afleiðing af því. Stjórinn var bálreiður við mig og kallaði mig inná skrifstofuna sína. Hann sagði mér að hann vildi hafa mig inná vellinum ekki utan hans. Ég var í leikbanni í þrjá leiki og þetta gerði næstum því út um tímabilið fyrir mér. Þetta er slæm minning en ég hef lært af atvikinu. Ég hef reynt að fara varlegar í tæklingar og standa í lappirnar. "

Þriggja leikja bann var framundan en hann endurheimti sæti sitt og 5. desember var rétti tíminn kominn til að stimpla sig inn með marki og það reyndist ekki smáglæsilegt. 5. desember 1999 var dagsetningin og andstæðingurinn Sheffield Wednesday. Það að skora fyrsta mark sitt fyrir klúbbinn sinn er stórkostleg stund, en að gera það á þann hátt sem Steven Gerrard gerði, er einstakt. Fyrir utan það að skora þetta frábæra mark, þá átti hann sannkallaðan stórleik á móti Wednesday. Hann var úti um allan völl, tæklaði og tættist, átti frábærar sendingar og hreinlega straujaði yfir allt sem fyrir var. Barðist eins og óður maður allan tímann og engu máli skipti þótt hann væri settur í hægri bakvörðinn eftir að Song fór af velli. Frábær alhliða leikmaður sem sýndi svo sannarlega að hann kunni ýmislegt fyrir sér með boltann. Það sem af var árinu hafði hann spilað í vinstri bakverðinum, hægri bakverðinum, hægri kanti, afturliggjandi miðjumaður og framliggjandi miðjumaður.


Til baka

Leikjahornið

Leikur Úrslit
Swansea - LFC 1 - 0
LFC - Chelsea 4 - 1
Chelsea - LFC 2 - 1

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í apríl?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin