Forsíða

Frétt

25.05.2007 16:05 | Sf. Gutt

Verður Adam Hammill skoskur bikarmeistari?

Úrslitaleikur Skosku bikarkeppninnar fer fram á morgun þegar Celtic spilar við Dunfermline. Sparkspekingar telja næsta víst að Celtic vinni úrslitaleikinn. Celtic varð skoskur meistari með yfirburðum á meðan mótherjar þeirra féllu eftir að hafa lent í neðsta sæti deildarinnar.

Adam Hammill er búinn að vera í láni hjá Dunfermline frá Liverpool og hefur vakið nokkra athygli fyrir góða framgöngu. Í umfjöllun vefsíðu BBC um bikarúrslitaleikinn er Adam talinn einn þriggja lykilmanna Dunfermline. Adam fær þessa umsögn hjá BBC.

"Adam Hammill er annar spennandi leikmaður. Hann er fljótur og hefur hæfileika til að leika á varnarmenn. Frá því hann kom sem lánsmaður frá Liverpool í janúar varð vængmaðurinn, sem hefur leikið með enska undir 19 ára landsliðinu, skjótt eftirlæti stuðningsmanna liðsins. Hann hefur reyndar bara skorað eitt mark en það var glæsilegt langskot gegn Celtic af öllum liðum. Táningurinn vill gjarnan sýna fullmikið af brögðum sínum en hann á oft góðar fyrirgjafir frá vinstri kantinum. Sem fyrr segir þá er hann mjög leikinn og leikni hans leiddi til vítaspyrnunnar sem réði úrslitum í undanúrslitunum."

Það verður gaman að sjá hvernig Adam gengur á morgun. Hann er mjög efnilegur og hann var einn lykilmanna Liverpool þegar Unglingabikarinn vannst í fyrra. Hver veit nema hann gæti komist í aðallið Liverpool. Það er þó eitt að vera efnilegur og annað að vera nógu góður til að geta fest sig í sessi í aðalliði Liverpool. En Liverpool vantar mann á vinstri kantinn.  






Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin