Gerard Houllier yfirgefur Lyon
Gerard Houllier er hættur sem framkvæmdastjóri Lyon. Hann náði frábærum árangri hjá Lyon á þeim tveimur leiktíðum sem hann var við stjórn þar. Gerard stóð í brúnni hjá Lyon frá hausti 2005 og gerði liðið að frönskum meisturum bæði 2006 og 2007. Hann vann franska Stórbikarinn, sem er leikur milli frönsku meistaranna og bikarmeistaranna, bæði árin. Afsögn Gerard Houllier kemur ekki alveg á óvart því spurst hefur af ósætti í herbúðum Lyon nú síðari hluta leiktíðarinnar. Hann getur þó farið sáttur frá borði eftir tvo meistaratitla á tveimur leiktíðum. Lyon hefur unnið franska meistaratitilinn sex síðustu árin!
Gerard Houllier var framkvæmdastjóri Liverpool 1998 til 2004. Hann vann sex titla hjá Liverpool. Árið 2001 vann Liverpool F.A. bikarinn, Deildarbikarinn, Evrópukeppni félagsliða, Stórbikar Evrópu og Góðgerðarskjöldinn. Gerard gerði svo Liverpool að Deildarbikarmeisturum árið 2003. Gerard var um tíma framkvæmdastjóri Paris Saint Germain og vann franska meistaratitilinn með því liði árið 1986.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

