Rafa Benítez hefur gefið eigendum félagsins skýr skilaboð. Nú verður að reiða fram budduna og þeir leikmenn keyptir sem hann vill þó þeir verði í dýrari lagi og þeir keyptir strax!
Það er heldur þungur tónninn í Rafa þessa dagana og skyldi kannski engan undra eftir tapið gegn Milan. Hann vill vinna meistaratitillinn og fá réttu leikmennina. Hann vill ekki bíða fram í ágúst til að hirða þá leikmenn sem voru annar eða þriðji valkostur hans í ákveðnar stöður heldur grípa strax til aðgerða og kaupa þá leikmenn sem eru hans fyrsti valkostur:
"Ég er orðinn þreyttur á að tala og tala. Ég óttast að ræða við leikmenn um áhuga okkar á þeim í einn, tvo eða jafnvel sex mánuði og missa þá svo úr greipum okkar. Ég vil að við grípum strax til aðgerða. Ef við viljum bæta liðið þurfum við á peningum að halda og ég veit hvaða leikmenn ég vil. Við verðum að segja: "kaupum hann". Við getum keypt toppklassaleikmenn núna strax sem kosta 15 - 20 milljónir evra (10-14 milljónir punda)."
Stjórnarformenn Liverpool, George Gillett og Tom Hicks hafa lofað því að standa við bakið á stjóranum að sjálfsögðu og reiða fram veskið. Gillett treystir Rafa fullkomlega: "Ef Rafa segðist vilja kaupa 'Snoogy Doogy' myndum við kaupa hann."