| Sf. Gutt

Jose horfir til framtíðar

Jose Reina var miður sín eftir úrslitaleikinn í Aþenu. Það var nógu slæmt að tapa leiknum um sjálfan Evrópubikarinn. En tapið fól líka í sér að honum tókst ekki, frekar en föður sínum, að verða Evrópumeistari. Að minnsta kosti ekki að þessu sinni! Þótt tapið svíði sárt þá horfir Jose hins vegar til framtíðar með það í huga að vinna fleiri titla.

"Við ætlum okkur að vinna fleiri titla á næstu leiktíð. Aðalmarkmiðið er að gera atlögu að meistaratitlinum. Sautján eða átján ár eru of langur tími. Það er ekki ásættanlegt fyrir jafn stórt félag og Liverpool er að hafa ekki unnið titilinn í svona langan tíma. Fólkið okkar verðskuldar þann titill sem allra fyrst og vonandi getum við fært því hann á næstu leiktíð.

Það verður erfitt að vinna titilinn því Chelsea hefur yfir það miklum fjármunum að ráða að þar á bær er alltaf hægt að byggja upp frábær lið. Lið United á eftir að vera betra en við munum reyna hvað við getum. Framkvæmdastjórinn fær meiri peninga í sumar. Hann mun kaupa nýja leikmenn og vonandi eiga þeir þeir eftir að skipta sköpum fyrir okkur."

 

 

 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan