| Ólafur Haukur Tómasson
Miðjumaðurinn Xabi Alonso hefur verið í lykilhlutverki í liði Liverpool síðan hann gekk til liðs við félagið frá Real Sociedad árið 2004. Rafa Benítez ætlar sér að hreinsa heldur betur til í leikmannahópi félagsins í sumar og hafa heyrst margar sögusagnir um að hann myndi selja Alonso í sumar.
Vitað er að spænsku risarnir frá Barcelona hafi áhuga á Alonso og hann sjálfur hefur sagt að Barcelona eigi stað nálægt hjarta hans en Benítez segist ekki hafa neinn áhuga á því að senda hann frá Merseyside.
"Hann á tvö ár eftir af samningi sínum og við erum meira að segja að hugsa um að framlengja hann." sagði Benítez við fréttastofu Sky Sports.
Rafa hefur nú þegar losað sig við Robbie Fowler, Jerzy Dudek og Florent Sinama Pongolle, ásamt því að það stefnir allt í að Bolo Zenden, Mark Gonzalez og Craig Bellamy ásamt Djibril Cissé séu allir á förum frá félaginu í sumar. Benítez er sagður fá mikinn pening til leikmannakaupa í sumar til að styrkja liðið með betri leikmönnum ásamt því að hann vill framlengja samninga lykilmanna liðsins.
TIL BAKA
Xabi er ekki að fara
Miðjumaðurinn Xabi Alonso hefur verið í lykilhlutverki í liði Liverpool síðan hann gekk til liðs við félagið frá Real Sociedad árið 2004. Rafa Benítez ætlar sér að hreinsa heldur betur til í leikmannahópi félagsins í sumar og hafa heyrst margar sögusagnir um að hann myndi selja Alonso í sumar.Vitað er að spænsku risarnir frá Barcelona hafi áhuga á Alonso og hann sjálfur hefur sagt að Barcelona eigi stað nálægt hjarta hans en Benítez segist ekki hafa neinn áhuga á því að senda hann frá Merseyside.
"Hann á tvö ár eftir af samningi sínum og við erum meira að segja að hugsa um að framlengja hann." sagði Benítez við fréttastofu Sky Sports.
Rafa hefur nú þegar losað sig við Robbie Fowler, Jerzy Dudek og Florent Sinama Pongolle, ásamt því að það stefnir allt í að Bolo Zenden, Mark Gonzalez og Craig Bellamy ásamt Djibril Cissé séu allir á förum frá félaginu í sumar. Benítez er sagður fá mikinn pening til leikmannakaupa í sumar til að styrkja liðið með betri leikmönnum ásamt því að hann vill framlengja samninga lykilmanna liðsins.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

