| Grétar Magnússon

Púllarar í Stykkishólmi láta gott af sér leiða

Guðmundur og félagar í Liverpool klúbbnum, afhentu Sesselju peningagjöfina við félagsheimili klúbbsins.Félagar í Liverpoolklúbbi Stykkishólms komu að sjálfsögðu saman í gær og horfðu á leikinn gegn AC Milan.  Fyrir leikinn var tippleikur í gangi um það hver myndi skora fyrsta markið og lét sigurvegarinn vinningspottinn renna óskiptan í orgelsjóð.

Hér er fréttin í heild sinni eins og hún birtist á vef Stykkishólmspóstsins.  Á myndinni má sjá Guðmund vinningshafa og félaga í Liverpool klúbbnum, afhenda peningagjöfina við félagsheimili klúbbsins.

Félagarnir í Liverpoolklúbbnum eru allir söngmenn góðir og skilja því vel þörfina á góðu hljóðfæri í kirkjuna. Þeir komu saman í kvöld til að fylgjast með Liverpool leika til úrslita í Meistaradeildinni gegn AC Milan. Og þrátt fyrir að Liverpool hafi tapað leiknum 1-2 þá voru þeir brattir félagarnir og sögðu að Liverpool hefði klárlega verið betra liðið. En fyrir leikinn tippuðu þeir á hver myndi skora fyrsta markið og lögðu allir í púkkið. Það reyndist vera Guðmundur Amlin sem spáði rétt og hlaut því sjóðinn sem hann gaf umsvifalaust í orgelsjóð. Og hvern kalla Hólmarar á þegar afhenda á pening í söfnun? Jú að sjálfsögðu Sesselju Páls og henni var því afhent upphæðin sem ku slaga hátt í eina pípu í nýja orgelinu.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan