L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
23.05.2007 16:05
|
Sf. Gutt
Spennandi leikur í uppsiglingu
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar 2005 hefst eftir rétt tvær klukkustundir. Stund sannleikans færist nær og spennan er að verða óbærileg.
Hér
má fylgjast með spennunni magnast upp á vefsíðu BBC.
Það er að kvölda í Aþenu. Leikurinn hefst þegar klukkuna vantar stundarfjórðung í sjö að okkar tíma. Rafael Benítez og hans menn hafa í dag lagt lokahönd á undirbúninginn fyrir þennan mikla leik. Það eina sem er ekki ljóst er hvaða ellefu fulltrúar Liverpool Football Club munu ganga til leiks út á Olympíuleikvanginn í Aþenu í kvöld. Fyrirfram skiptir það ekki öllu hverjir ganga til leiks. Aðalatriðið er að leikmenn Liverpool standi undir nafni og geri sitt allra besta. Víst er að þeir munu fá stuðning til góðra verka.
Stuðningsmenn
Liverpool eru þúsundum saman í Aþenu og þeir munu ekki láta sitt eftir liggja.
Héðan í frá er ekkert hægt að gera nema bíða og vonast eftir því að leikmenn Liverpool komi sér á spjöld sögunnar með því að færa félaginu okkar Evrópubikarinn í sjötta sinn. Góðar óskir fylgja liðinu okkar úr öllum heimshornum. Veitum nú okkar mönnum allan þann stuðning sem við getum. Upp með trefla og fána.
You´ll Never Walk Alone!!!!!!
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir