Aðalfundur Liverpoolklúbbsins
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins var haldinn á Players á fimmtudaginn var, 17. maí. Þar flutti formaður klúbbsins, Jón Óli Ólafsson, skýrslu stjórnar og fór yfir viðburðarríkt starfsár í sögu klúbbsins. Þá voru reikningar klúbbsins bornir upp og samþykktir.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn félagsins á fundinum. Kosið var um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára auk þess sem kjósa þurfti fjórða stjórnarmanninn til eins árs þar sem einn hætti störfum á starfsárinu. Voru Hallgrímur Indriðason, Benedikt Jón Sigmundsson og Bragi Brynjarsson kjörnir til tveggja ára og Arngrímur Baldursson til eins árs. Þá voru kjörnir í varastjórn til eins árs Guðmundur Magnússon og Guðmundur Hreiðarsson. Auk þeirra sitja nú í stjórn klúbbsins Jón Óli Ólafsson formaður, Markús Einarsson og Sigurður Reynisson.
Jósep Svanur Jóhannesson hætti nú í stjórn klúbbsins en þar hefur hann setið nánast óslitið frá árinu 1999. Er honum hér með færðar bestu þakkir fyrir frábært starf í þágu klúbbsins.
Á fundinum var ákveðið að stofna YNWA-styrktarsjóð, sem er ætlað að styrkja gott málefni í nafni Liverpoolklúbbsins. Nánari útfærsla á sjóðnum verður ákveðin síðar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

