| Sf. Gutt

Ian Rush hefur orðið

Umræðuefni vikunnar er bara eitt. Annað kvöld mun Liverpool leika til úrslita um Evrópubikarinn í Aþenu. Stuðningsmenn Liverpool geta ekki um annað hugsað og Ian Rush er ekki nein undantekning. Hann er markhæsti leikmaður í sögu Liverpool og vann fjölda titla með félaginu. Meðal annars þá varð hann Evrópumeistari árið 1984. Þrátt fyrir öll þessi afrek þá er Ian þó fyrst og síðasta stuðningsmaður Liverpool. Það endur speglast líka í skrifum hans. 

Í pistli vikunnar veltir Ian því hvaða leikmenn Rafael Benítez muni velja í byrjunarliðið. Reyndar telur Ian ekki þurfa að velta því fyrir sér hvaða menn skipi öftustu varnarlínuna. En hverjir verða á miðjunni og í sókninni. Ian er búinn að mynda sér skoðun á því hvaða menn verði fyrir valinu. Hann veltir líka fyrir sér einu og öðru í sambandi við úrslitaleikinn. Ekki er ólíklegt að Ian Rush verði í Aþenu annað kvöld. Þar getur Liverpool unnið Evrópubikarinn í sjötta sinn. Til að það geti tekist þurfa allir leggjast á eitt við að að hvetja liðið til dáða. Víst er að Ian Rush mun ekki láta sitt eftir liggja í að hvetja Rauða herinn til sigurs í Aþenu! Pistill vikunnar er hér.

 

 

 

 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan