Eftir hverja helgi velur vefsíða BBC lið helgarinnar. Nú í lok leiktíðarinnar tilkynnti vefsíðan svo úrsvalslið leiktíðarinnar. Garth Crooks, sem lék á sínum tíma meðal annars með Stoke City, Tottenham Hotspur og West Bromwich Albion, velur jafnan lið helgarinnar. Sá hinn sami ber líka ábyrgð á liði leiktíðarinnar. Það verður að segjast eins og er að þetta lið er nokkuð gáfulega valið. Að minnsta kosti miðað við liðið sem leikmenn völdu sjálfir. Samt eiga liðin það sameiginlegt að í þeim báðum er að finna fyrirliða Liverpool.
Þetta er úrvalslið BBC:
BEN FOSTER (Watford)
EMMANUEL EBOUE (Arsenal)
NICKY SHOREY (Reading)
RIO FERDINAND (Manchester United)
NEMANJA VIDIC (Manchester United)
MICHAEL ESSIEN (Chelsea)
STEVEN GERRARD (Liverpool)
CRISTIANO RONALDO (Manchester United)
CARLOS TEVEZ (West Ham United)
DIMITAR BERBATOV (Tottenham Hotspur)
DIDIER DROGBA (Chelsea)
Garth gaf öllum leikmönnum umsögn og hér að neðan er umsögn hans um Steven Gerrard.
Steven Gerrard: Mér finnst Steven og Kaka vera tveir bestu miðjumenn í heimi. Þegar Steven er upp á sitt besta, með Liverpool eða enska landsliðinu, þá tapar hvorugt þessara liða. Ég hef stundum velt því fyrir mér, af því hann er svo mikill lykilmaður með Liverpool, af hverju hann er ekki í jafn miklu lykilhlutverki í enska landsliðinu. Steven er stórkostlegur leikmaður og býr yfir gríðarlegum hæfileikum. Enska landsliðið er mjög lánsamt að hafa Steven Gerrard og það ætti að byggja landsliðið í kringum hann.