Byrjunin fór með möguleikana
Á dögunum fjallaði Alan Hansen um gengi Liverpool í deildinni á þessari leiktíð. Nú er komið að Mark Lawrenson, fyrrum samverkamanni hans í vörn Liverpool, að fjalla um það sama. Þeir félagar, sem báðir vinna sem sparkspekingar hjá BBC, eru sammála um hvað fór úrskeiðis. Hér segir Mark Lawrenson álit sitt. Þetta er hluti úr grein sem birtist í staðarblaðinu Daily Post.
"Liverpool lenti strax í eltingarleik við stóru liðin, á þessari leiktíð, eftir byrjun á fyrstu vikum hennar sem olli vonbrigðum. Liðið byrjaði ekki vel og það tók Rafa Benítez nokkurn tíma að átta sig á því hvernig sterkasta lið hans ætti að vera. Bæði hvað varðar hvað leikaðferð ætti að nota og eins hvaða leikmönnum ætti að stilla upp. Staðreyndin er sú að ef lið ætlar sér að vinna Úrvalsdeildina þá verður það að spila á fullu frá fyrsta degi.
Það eru margir mjög góðir leikmenn hjá Liverpool en það er erfitt að finna þá sem gætu gert liðið enn betra en það er og gert það að meisturum aftur. Hvað svo sem þarf að gera til að það takmark náist þá myndi ég segja að lokaskrefið sé það erfiðasta. Liverpool var hvorki meira né minna en 21 stigi á eftir meisturum Manchster United á stigatöflunni. Þetta er stórt bil. Sjö sigrar skilja liðin. Ef liðið á að geta veitt United og Chelsea keppni í deildinni á næstu leiktíð þá þarf að taka stór skref í sumar og kaupa fjóra hágæða leikmenn.
Þeir Peter Crouch, Dirk Kuyt og Craig Bellamy búa yfir mörgum góðum kostum. Þó er ekki hægt að treysta á neinn þeirra til að skora rúmlega 20 mörk á einni leiktíð. Ef ég yrði að nefna einn leikmann sem væri í sigtinu þá myndi ég nefna Michael Owen. Það er að segja ef hann er heill heilsu. Ég er viss um að hann myndi standa sig. Það er einfaldlega enginn annar jafn fljótur og hann. Hann býr líka yfir hæfileikum sem aðrir hafa ekki. Aðrir sem búa yfir þessum hæfieikum kosta að minnsta kosti miklu meira en hann. Ef rétt er að hann hafi ákvæði í samningi sínum um að hann geti farið fyrir níu milljónir sterlingspunda þá myndi ég íhuga alvarlega að fá hann aftur á Anfield."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

