Ég elska Liverpool ennþá
Jose Reina lennti í því leiðindaratviki að það var brotist inn til hans og eigum hans rænt þegar hann lék með liðinu gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en þar var hann hetja liðsins og átti frábærann leik og varði meðal annars tvær af þremur vítaspyrnum Chelsea í vítaspyrnukeppninni, og hefur hann sagt að innbrotið hafi bara verið óheppni.
Hann sagði: "Þegar við komum heim þá tók ég eftir því að bíllinn okkar var ekki á sínum stað og ég spurði eiginkonu mína Yolanda hvar hann væri og við áttuðum okkur strax á því að eitthvað hefði gerst. Við gengum inní húsið og sáum að það hafði verið tekið flest allt úr því.
Það er satt að það gerir mann hræddann af vita af manni í húsinu þínu á meðan þú ert ekki heima, en mér líkar vel við Liverpool borg og þetta er ekkert meira en eitt leiðindaratvik. Þetta svæði er mjög notalegt og þetta var bara óheppni."
Reina sem hefur nú þegar verið hetja liðsins tvö ár í röð og varið frábærlega í tveimur vítaspyrnukeppnum fyrir liðið meiddist á öxl í deildarleiknum gegn Fulham nú á dögunum og ekki er víst hversu alvarlegt það er en við skulum vona að hann verði með fulla heilsu í úrslitaleiknum sem fer fram eftir sextán daga í Aþenu.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

