| Grétar Magnússon

Ísland í dag gefur tvo miða á Liverpool-Chelsea

Dægurmálaþátturinn Ísland í dag sem er á Stöð 2, í samstarfi við Carlsberg, ætla að gefa tvo miða á seinni leik Liverpool og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar !

Til þess að eiga möguleika á að vinna þessa miða þarf að taka þátt í léttum leik sem fer fram í kvöld, þriðjudagskvöldið og miðvikudagskvöldið í Íslandi í dag.  Í vinning er miði fyrir tvo í VIP stúku Carlsberg á Anfield en leikurinn fer fram þriðjudagskvöldið 2. maí.

Við hvetjum alla stuðningsmenn Liverpool til að fylgjast vel með Íslandi í dag næstu daga og taka þátt í skemmtilegum leik þar sem verðlaunin eru ekki af verri endanum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan