Bilið brúað
Það er illa geymt leyndarmál hversu stirð samskipti voru á milli Gérard Houllier og stjórnenda Akademíunnar hjá Liverpool FC í sumum málum. Frank Skelly tjáir sig um breytta tíma í kjölfar ráðningar Rafael Benítez.
Skelly: "Rafael Benítez er frábær. Það hafa orðið gríðarlegar breytingar á viðhorfi gagnvart Akademíunni. Það hafa opnast mun meiri tækifæri fyrir þjálfara okkar til að ræða málin og það er viðurkennt að við spilum stóra rullu í framtíð félagsins.
John Owens, þjálfari undir 18 ára liðsins, ferðast nú með leikmönnunum í alla leiki varaliðsins. Við skiptumst oftar á leikmönnum þannig að ungir strákar fá að fara á Melwood og æfa með aðalliðinu. Ég tek nú ekki svo sterkt til orða að það hafi sltinað á milli Akademíunnar og Melwood, vegna þess að það var fullt af góðu fólki þar, eins og Sammy Lee og Hugh McAuley. En við fundum vel fyrir því að okkar strákar voru ekki á jafnréttisgrundvelli við franska stráka á sama aldri þegar kom að vali í lið. T.d. John Welsh, leikmaður undir 21 árs liðs Englands. Hann fékk bara ekki tækifæri. Við vissum í hjarta okkar að John var ekki síðri en aðrir sem fengnir voru inn, ef ekki bara betri. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn, en ég viðurkenni það að við vorum pirraðir á þessu."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

