| Grétar Magnússon

Leikjadagskráin í desember

Búið er að staðfesta leiktíma Liverpool í Úrvalsdeildinni í desembermánuði.

Fyrsti leikur mánaðarins í deildinni verður gegn Úlfunum á Anfield, nánar tiltekið sunnudaginn 6. desember kl. 19:15.

Sunnudaginn 13. desember mæta okkar menn svo Fulham á útivelli og hefst sá leikur klukkan 16:30.

Leikið er í miðri viku og þá er aldeilis stórleikur á Anfield þegar Tottenham mæta á svæðið, leikurinn hefst klukkan 20:00.

Næst á dagskrá er heimsókn til Lundúna til að etja kappi við Crystal Palace, sá leikur fer fram laugardaginn 19. desember klukkan 12:30.

Jólin ganga svo í garð og fyrsti leikur þeirrar hrinu verður gegn W.B.A. á Anfield, sunnudaginn 27. desember klukkan 16:30.

Þann 30. desember, sem er miðvikudagur, er svo útileikur við Newcastle United og verður það auðvitað síðasti leikur liðsins á árinu, hefjast leikar klukkan 20:00.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan