| Sf. Gutt

Liverpool Football Club á afmæli í dag!


Hvernig væri að baka eina rjómatertu og skella eitt hundrað tuttugu og sjö afmæliskertum á hana í tilefni dagsins? Það er reyndar kannski svolítið erfitt að koma svo mörgum kertum fyrir á einni tertu. Það verður bara að hafa hana stóra! Liverpool Football Club á nefnilega afmæli í dag.

Everton, sem var stofnað árið 1878, hafði leikið á Anfield Road frá árinu 1884. Forráðamönnum félagsins þótti leigan, sem þeir borguðu fyrir afnot af vellinum of há, og þann 12. mars 1892 var haldinn fundur um málið. Forsvarsmenn Everton neituðu að borga uppsetta leigu til vallareigandans og hættu þar með að leika á Anfield Road. Sem betur fer! 

Þann 15. mars var aftur haldinn fundur þar sem eigandi Anfield Road John Houlding ákvað, ásamt nokkrum öðrum stuðningsmönnum sínum, að stofna knattspyrnufélag til að leika á Anfield. Félagið sem John og samstarfsaðilar hans stofnuðu hlaut nafnið Liverpool Association Football Club. Fáir hafa unnið gagnlegri verk hvað knattspyrnu varðar! 

Það var svo 3. júní 1892 sem knattspyrnufélagið Liverpool F.C. var skrásett hjá opinberum yfirvöldum. Þar með var félagið formlega stofnað og gat hafið starfsemi. Það má því segja að 3. júní sé opinber afmælisdagur félagsins þó svo 15. mars sé líka lykildagur í sögu félagsins því þá var tekin ákvörðun um stofnun félagsins. 




Á 125 ára afmæli félagsins, var nýtt myndband frumsýnt sem segir sögu félagsins á 125 sekúndum. Það má horfa á það hér. Það þarf reyndar að bæta sjötta Evrópubikartitlinum við myndbandið!


You'll never walk alone
When you walk through the storm 
Hold your head up high 
And don't be afraid of the dark 
At the end of the storm 
There's a golden sky 
And the sweet silver song of the lark 


Walk on, through the wind 
Walk on, through the rain 
Though your dreams be tossed and blown 
Walk on, walk on, with hope in your heart 
And you'll never walk alone 
You'll never walk alone 


Walk on, walk on, with hope in your heart 
And you'll never walk alone 
You'll never walk alone! 






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan