| Sf. Gutt

Í minningu Bob Paisley


Í dag eru 23 árin liðin frá því meistarinn Bob Paisley yfirgaf þetta jarðlíf. Bob er sigursælasti framkvæmdastjóri í sögu Liverpool. Ekki er nóg með það því það stenst enginn Breti samanburð við hann. Hver annar hefur til dæmis unnið þrjá Evrópubikara? Svar: Enginn! 

Enn þann dag í dag furða stuðningsmenn Liverpool og margir aðrir áhugamenn um ensku knattspyrnuna sig á því að Bob skyldi aldrei vera aðlaður. Sagan sýnir að það hefur stundum verið hlaupið upp til handa og fóta og heiðursmerkjum hlaðið á menn sem minna hafa lagt af mörkum. En við stuðningsmenn Liverpool metum Bob og afrek hans að verðleikum og það er það sem máli skiptir.  

Ferill hans hjá Liverpool verður aldrei viðjafnaður. Hann var starfsmaður Liverpool frá 1939 og næstu hálfa öldina. Fyrst sem leikmaður, þá þjálfari, sjúkraþjálfari, aðstoðarframkvæmdastjóri, framkvæmdastjóri og loks sem stjórnarmaður. Ferill hans er einstakur hvernig sem á hann er litið. Greinargóðar lýsingar á ferli hans er að finna á vefsíðunum Bobpaisley.com og LFChistory.net.

Bob Paisley OBE

Fæddur: 23. janúar 1919.

Dáinn: 14. febrúar 1996.

Leikmaður Liverpool 1939 til 1954. 

Leikir með Liverpool: 277.

Mörk með Liverpool: 12.

Titill: Bob varð enskur meistari með Liverpool leiktíðina 1946/47. 



Framkvæmdastjóri Liverpool 1975 til 1983.

Afrek sem framkvæmdastjóri.

Englandsmeistari: 1975/76, 1976/77, 1978/79, 1979/80, 1981/82 og 1982/83.

Deildarbikarmeistari: 1980/81, 1981/82 og 1982/83.

Góðgerðarskjöldurinn: 1974, 1976, 1977 (deilt), 1979, 1980 og 1982.

Evrópukeppni meistaraliða: 1976/77, 1977/78 og 1980/81.

Evrópukeppni félagsliða: 1975/76.

Stórbikar Evrópu: 1977.

Framkvæmdastjóri ársins: 1976, 1977, 1979, 1980, 1982 og 1983.

Framkvæmdastjóri mánaðarins: Fjórtán sinnum.

Bob var Kenny Dalglish til ráðgjafar þegar Kenny tók við framkvæmdastjórn sumarið 1985. Kenny stýrði Liverpool til sigurs í deild og bikar á sinni fyrstu leiktíð 1985/86. Bob átti sinn þátt í því afreki þótt það sé ekki á afrekaskrá hans. Bob endaði starfsferil sinn hjá Liverpool með því að sitja í stjórn félagsins frá 1983 til 1992.


Grafskrift Bob Paisley

,,Hógvær maður sem vann ótrúleg afrek."


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan