| Sf. Gutt

Ovie Ejaria gerir samning og fer í lán

Ovie Ejaria hefur gert nýjan samning við Liverpool. Ekki kemur fram hvað samningurinn er langur.  

Ovie verður þó ekki hjá Liverpool á næstu leíktíð því hann hefur verið lánaður til Glasgow Rangers. Steven Gerrard þekkir vel til piltsins og hefur greinilega álit á honum. 

Ovie sagði það hafa verið auðvelda ákvörðun að gera nýjan samning við Liverpool. ,,Ég er núna búinn að vera hjá Liverpool í fjögur ár og það gleður mig mjög mikið að framlengja dvöl mína hérna. Þetta er risafélag, því gengur mjög vel núna og þess vegna var ákvörðunin auðveld."

Ovie, sem getur leikið flestar stöður fremst á vellinum, kom til Liverpool frá Akadeníu Arsenal árið 2014. Hann lék sem lánsmaður hjá Sunderland á síðasta keppnistímabili. Hann hefur leikið átta leiki með aðalliði Liverpool. Ovie hefur spilað með yngri landsliðum Englands og nú síðast undir 21. árs liðinu.





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan