| Sf. Gutt

Niðurtalning - 2. kapítuli


Niðurtalningin heldur áfram í dag. Að þessu sinni verður fjallað um ýmis afrek og met leikmanna Liverpool í Evrópukeppnum.

+ Þetta er 44. leiktíð Liverpool á Evrópumótunum. Þar af er liðið að spila 22. leiktíð sína meðal sterkustu liða Evrópu. 

+ Á þessum leiktíðum hefur Liverpool unnið 11 Evróputitla. 


+ Sigursælasti leikmaður Liverpool í Evrópukeppnum er Phil Neal. Hann vann Evrópubikarinn fjórum sinnum 1977, 1978, 1981 og 1984, Evrópukeppni félagsliða einu sinni 1976 og Stórbikar Evrópu einu sinni 1977. 

+ Phil hefur því tekið þátt í sex af 11 Evróputitilsigrum Liverpool. 

+ Phil Neal hefur spilað í fjórum af fimm sigurliðum Liverpool í Evrópubikarnum hingað til. 

+ Phil Neal er líka markahæsti leikmaður Liverpool í úrslitaleikjum Evrópubikarsins. Hann skoraði í úrslitaleikjunum 1977 og 1984. 


+ Fjórir fyrirliðar Liverpool hafa tekið við Evrópubikarnum. Emlyn Hughes veitti honum viðtöku árin 1977 og 1978. Phil Thompson var fyrirliði 1981 og Graeme Souness leiddi liðið 1984. Steven Gerrard tók svo við Evrópubikarnum til eignar 2005.


+ Þrír leikjahæstu leikmenn Liverpool í Evrópukeppni eru Jamie Carragher 150 leikir, Steven Gerrard 130 og Sami Hyypia 94.


+ Leikjahæstu menn af núverandi leikmönnum Liverpool eru þeir Jordan Hendersonn 33, Dejan Lovren 29 og Roberto Firmino 27. 


+ Markahæstu leikmenn Liverpool í Evrópukeppni eru Steven Gerrard 41, Michael Owen 22 og Ian Rush 20. Eru hér allar Evrópukeppnir taldar. 

 
+ Markahæstu menn af núverandi leikmönnum Liverpool eru Roberto Firmino 12, Mohamed Salah 11 og Sadio Mané 9.


+ Þeir Mohamed Salah og Roberto Firmino hafa skorað 11 Evrópumörk á þessari leiktíð. 

+ Þeir félagar settu nýtt félagsmet á leiktíðinni yfir Evrópumörk á einni leiktíð. Þeir eru komnir með 11 mörk. Dean Saunders átti gamla metið en hann skoraði níu Evrópumörk á sparktíðinni 1991/92. 


+ Leikmenn Liverpool hafa 19 sinnum skorað þrennu í Evrópuleik. Sadio Mané skoraði þá nýjustu á móti Porto. 

+ Stærsti sigur Liverpool í Evrópukeppni kom þann 17. september 1974 í Evrópukeppni bikarhafa. Liverpool vann þá Stromsgodset frá Noregi 11:0. Alec Lindsay víti, Phil Boersma 2, Phil Thompson 2, Steve Heighway, Peter Cormack, Emlyn Hughes, Tommy Smith, Ian Callaghan og Ray Kennedy skoruðu. Aðeins þeir Ray Clemence og Brian Hall náðu ekki að skora. Aldrei hafa fleiri leikmenn Liverpool skorað í sama leiknum. Liverpool vann seinni leikinn 1:0 með marki frá Ray Kennedy. 

+ Stærsti sigur samtals kom í Evrópukeppni félagsliða leiktíðina 1969/70. Liverpool vann þá írska liðið Dundalk 10:0 á Anfield Road og 4:0 á Írlandi. Samtals 14:0.






 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan