| Sf. Gutt

Nýr búningur kynntur!


Snemma í morgun á fyrsta degi sumars kynnti Liverpool Football Club nýjan aðalbúning fyrir næsta keppnistímabil. Segja mætti að þetta sé sumargjöf handa okkur stuðningsmönnum Liverpool :)

Búningurinn er að sjálfsögðu fagurrauður og það er lítið hvítt í honum. Aðeins rönd á kraga og við hálsmál auk randar á sokkunum er með hvítum lit. Fuglinn er hvítur að þessu sinni eins og hann var oft fyrr á árum. Kraginn er hnepptur. Rauði liturinn er í dekkra lagi eins og á búningnum sem notaður hefur verið á þessu keppnistímabili. Talan 96 til minningar um þá sem fórust á Hillsborough er aftan á líkt og mörg síðustu árin. Aðalmarkmannsbúningurinn er gulur frá toppi til táar. 

Hér má horfa á kynningarmyndband um búninginn.

Hér má sjá leikmenn Liverpool máta nýja búninginn á myndbandi. 

Hér má  panta búninginn í forsölu í vefverslun Liverpool Football Club.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan