| Sf. Gutt

126 ár frá stofnun Liverpool Football Club!


Í dag eru 126 ár liðin frá því knattspyrnufélag sem fékk nafnið Liverpool Football Club var stofnað í ensku hafnarborginni Liverpool á vesturströnd Englands. Formlegur afmælisdagur er ekki í dag en þennan dag fyrir 126 árum var haldinn fundur sem markaði stofnun félagsins þó formlegur stofndagur teljist 3. júní.

Everton hafði leikið á Anfield Road frá árinu 1884. Forráðamönnum félagsins þótti leigan, sem þeir borguðu fyrir afnot af vellinum of há, og laugardaginn 12. mars 1892 var haldinn fundur um málið. Forsvarsmenn Everton neituðu að borga uppsetta leigu til vallareigandans og hættu þar með að leika á Anfield Road. Sem betur fer! 


Þriðjudaginn 15. mars var aftur haldinn fundur þar sem eigandi Anfield Road John Houlding ákvað, ásamt nokkrum öðrum stuðningsmönnum sínum, að stofna knattspyrnufélag til að leika á Anfield. Félagið sem John og samstarfsaðilar hans stofnuðu hlaut nafnið Liverpool Association Football Club. Fáir hafa unnið gagnlegri verk hvað knattspyrnu varðar. Eitt frægasta knattspyrnufélag í heimi var fætt. 

Það var svo föstudaginn 3. júní 1892 sem knattspyrnufélagið Liverpool F.C. var skrásett hjá opinberum yfirvöldum. Það er sá dagur sem haldinn er hátíðlegur hjá félaginu sem formlegur stofndagur og því kannski aðalafmælisdagurinn. En fundurinn sem haldinn var 15. mars markaði stofnun félagsins og hann er því hátíðisdagur í sögu félagsins :)

Hér má fræðast um hvernig stofnun Liverpool Football Club bar til. 

Hér er myndband sem rekur aðdraganda stofnunnar félagsins. 






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan