| Sf. Gutt

Það var fyrir tveimur árum!


Það var mikil spenna í loftinu í Liverpool og víðar fyrir tveimur árum síðan. Jürgen Klopp var á leiðinni! Þetta var svo sem ekki ný frétt því dagana á undan höfðu traustustu fjölmiðlar í Bretaveldi og Germaníu fullyrt að Þjóðverjinn yrði arftaki Brendan Rodgers. Þennan dag myndi fást staðfesting á því!

Jürgen vaknaði í Þýskalandi en fjölmiðlamenn höfðu góðar gætur á honum og svo fór seinni partinn að fréttir bárust af því að Jürgen væri kominn í flug með einkaflugvél og stefnan hefði verið tekin á Liverpool. Fjölmagir stuðningsmenn Liverpool fylgdist með flugi vélarinnar á sérstakri vefsíðu! Vélin lenti heilu og höldnu á John Lennon flugvellinum í Liverpool og varla hefur verið fylgst jafn náðið með nokkurri flugvél sem hefur lent á þeim góða flugvelli fyrr og síðar. 


Á flugvellinum tóku forráðamenn Liverpool á móti framkvæmdastjóraefninu og svo var ekið út í borgina. Seinna um kvöldið birtist frétt á Liverpoolfc.com þar sem greint var frá því að Jürgen Klopp væri búinn að skrifa undir samning sem framkvæmdastjóri Liverpool og um leið var boðaður blaðamannafundur morguninn eftir. Í kjölfarið var birt viðtal við Jürgen á síðunni sem hann endaði á þessum frægu orðum. ,,Við verðum að fara að trúa í stað þess að efast. Strax!"




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan