| Sf. Gutt

Verum jákvæð og njótum leiksins!


Jürgen Klopp, framkvæmdastjóri Liverpool hvetur stuðningsmenn Liverpool til að vera jákvæða fyrir síðasta leik leiktíðarinnar. Í honum ræðst hvort Liverpool nær sæti í Meistaradeildinni. Það er mikil spenna fyrir leikinn og kannski efast einhverjir um að ætlunarverkið takist. Jürgen segir enga ástæðu til að efast. Hann hafði meðal annars þetta að segja á blaðamannafundi í dag.

 

,,Það er engin ástæða til þess. Liðið er búið að sýna það mikið á þessu keppnistímabilinu og við verðum tilbúnir í slaginn. Við eigum eiginlega að vera jákvæð og njóta leiksins. Kannski verður taugaspenna meðal stuðningsmannanna en það er hluti af þessu. Ég hlakka virkilega til leiksins og ég get vel notað þetta tækifæri til að þakka fyrir það frábæra andrúmsloft sem hefur verið á leikjum á þessu keppnistímabili. Ég ætla ekki að segja að það geti ekki verið enn betra en það er búið að vera býsna gott á þessari leiktíð og við höfum sannarlega notið þess. Nú skulum við leggja saman krafta okkar einu sinni enn og ná takmarkinu!"


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan