| Sf. Gutt

Fyrsti dagurinn í vinnunni!


Steven Gerrard mætti í fyrsta skipti í nýju vinnuna sína í dag. Hann hefur opinberlega hafið störf sem unglingaþjálfari hjá Liverpool Football Club!


Steven Gerrard mætti í nýja einkennisbúningnum sínum og hófst handa við að leiðbeina ungum piltum sem vafalaust ala þann draum með sér að spila með Liverpool og komast í fremstu röð eins og Steven. Vonandi á hann eftir að hafa hvetjandi áhrif á strákana sem hann þjálfar á næstu misserum þannig að þeir verði nógu góðir til að spila með Liverpool!


Á dögunum var tilkynnt um að Steven Gerrard hefði verið ráðinn þjálfari við Akademíu Liverpool en það var ekki fyrr en í dag að að hann hóf störf!

Hér eru myndir af Liverpoolfc.com frá fyrsta vinnudegi Steven Gerrard sem þjálfara Liverpool.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan