| Sf. Gutt

Á réttri leið!

Nýjustu fréttir af Philippe Coutinho eru heldur góðar. Hann er á batavegi og gerir sér vonir um að verða orðinn leikfær fyrir síðasta leik árins. 

Philippe meiddist á ökkla á móti Sunderland undir lok nóvember og búist var við að hann yrði frá fram í miðjan janúar. Batinn hefur verið góður og hugsanlegt er að Philippe geti farið að æfa í næstu viku.

Einhverjir fjölmiðlar hafa borið fréttir þess efnis að Philippe gæti verið orðinn leikfær fyrir leik Liverpool og Manchester City sem fer fram á Anfield seinni partinn á gamlársdag. Hvort sú verður raunin kemur í ljós en gott er að bati Philippe er góður.





 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan