| Sf. Gutt

Yfirlýsing Steven Gerrard!


Steven Gerrard hefur lagt knattspyrnuskó sína á hilluna. Hann tilkynnti þetta opinberlega með yfirlýsingu sem hér má lesa. 

Í kjölfar þess að fjölmiðlar hafa verið með vangaveltur um framtíð mína get ég staðfest að ég hef nú bundið endi á feril minn sem atvinnumaður í knattspyrnu. Ég hef átt ótrúlegan feril og ég er þakklátur fyrir hverja þá stund sem ég átti með Liverpool, enska landsliðinu og LA Galaxy. 



Ég var enn táningur þegar ég uppfyllti bernskudraum minn að klæðast hinni frægu rauðu treyju Liverpool. Þegar ég spilaði minn fyrsta leik á móti Blackburn Rovers í nóvember 1998 gat ég ekki ímyndað mér hvað myndi fylgja í kjölfarið næstu 18 árin. Mér finnst að ég sé lánsamur að hafa náð að upplifa dásamlegar stundir á ferlinum mínum. Ég er stoltur yfir því að hafa spilað rúmlega 700 leiki fyrir Liverpool, marga af þeim sem fyrirliði og að hafa átt þátt í að hjálpa liðinu til að færa stórtitla heim á Anfield. Af mörgu stendur kvöldið fræga í Istanbúl upp úr. 


Hvað landsliðið varðar þá finnst mér það hafa verið forréttindi að hafa spilað 114 landsleiki og eins var það heiður að hafa verið fyrirliði lands míns. Það fyllti mig miklu stolti í hvert skipti sem ég klæddist ensku landsliðstreyjunni. 





 
Ég er mjög lánsamur að hafa átt svona farsælan feril en hann hefði ekki orðið nema fyrir stuðning margra. Í fyrsta lagi langar mig að þakka öllum hjá Liverpool Football Club. Ég er stoltur af að hafa spilað fyrir hönd Liverpool og verið fyrirliði í svona mörg ár. Eins er ég stoltur yfir því öllu því sem við náðum að afreka á meðan ég var hjá félaginu. Ég var heppinn að spila við hliðina á framúrskarandi leikmönnum og undir stjórn frábærra framkvæmdastjóra á meðan ég var á Anfield. Ég vil nota tækifærið til að færa þeim öllum þakklæti mitt og það sama á við þjálfarana sem voru hjá félaginu allan þann tíma sem ég var hjá félaginu. Ég á þeim mikið að þakka fyrir allan þann stuðning sem þeir veittu mér. 


Sérstaklega langar mig að þakka þeim Steve Heighway, Dave Shannon og Hugh McAuley fyrir að hafa trú á mér þegar ég var að taka mín fyrstu skref hjá félaginu og veita mér þann undirbúning sem ég þurfti til að geta tekist á við að reyna að uppfylla drauma mína. 



Ég færi hinum mögnuðu stuðningsmönnum Liverpool, enska landsliðsins og LA Galaxy þakkir fyrir hinn ótrúlega stuðning sem þeir veittu mér í gegnum allan feril minn. Hollusta ykkar og stuðningur hefur verið ómetanlegur. Mig langar að þakka Struan Marshall sem hefur verið umboðsmaður minn frá upphafi ferils míns og starfsliði Wasserman fyrir þeirra stuðning síðustu 18 árin. 


Fyrir utan knattspyrnuvöllinn hef ég verið lánsamur að eiga traustan vinahóp sem ég hef alltaf getað treyst á og leitað til í gegnum allan feril minn. Ég færi ykkur þakkir mínar. Síðast en ekki síst fær fjölskyldan mín þakkir. Ég get ekki þakkað mömmu, pabba og Paul bróður mínum næganlega vel fyrir þann ómetanlega stuðning sem þau öll hafa veitt mér í gegnum árin. Alex, konan mín, og börnin Lily, Lexie and Lourdes, ég þakka ykkur fyrir ást ykkar og þann stuðning sem þið hafið veitt mér. Þið hafið staðið við bakið á mér í gegnum súrt og sætt. Án ykkar hefði ekkert af þessu verið mögulegt. Takk fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig.


Ég er spenntur fyrir framtíðinni og mér finnst að ég hafi ennþá mikið fram að færa í íþróttinni. Það kemur á daginn í hvað formi það verður. Ég er núna í rólegheitum að skoða ýmsa möguleika og mun fljótlega senda frá mér tilkynningu um hver næstu skref mín á ferlinum verða. 

Steven Gerrard



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan