| Sf. Gutt
Nú velta margir því fyrir sér hvort Steven Gerrard sé á heimleið til Liverpool. Hann sendi frá sér skilaboð á Instagram síðu sinni sem margir túlka sem kveðju til Los Angeles Galaxy. Þar segir hann það hafa verið forréttindi að hafa spilað með félaginu og hafa búið í borginni. Hann bætti því við að borgin og félagið muni ætíð hafa sérstakan sess í hjarta hans. Reyndar hefur ekkert verið staðfest opinberlega um að Steven sé að hætta hjá Los Angeles Galaxy en leiktíðinni í Ameríku er ekki lokið. Liðið er komið í umspil en Steven er nú í Liverpool eftir að hafa tognað aftan á læri. Steven hefur reyndar látið að því liggja að hann sé að íhuga að leggja skóna á hilluna nú þegar leiktíðinni lýkur.
Á blaðamannafundi eftir leik Liverpool og West Bromwich Albion í gær sagði Jürgen Klopp að Steven Gerrard yrði alltaf velkominn til Liverpool og hjá félaginu væru honum allar dyr opnar. Hann bætti reyndar við að allar umræður um hugsanlega endurkomu Steven Gerrard til Liverpool yrðu þeirra í milli.
Steven gæti sem sagt snúið aftur til Liverpool þegar keppnistímabilinu í Ameríku lýkur. Þetta kemur allt í ljós á næstu vikum en vissulega væri gaman að fá Steven aftur heim til Liverpool.
TIL BAKA
Er Steven Gerrard á heimleið?

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan