| Sf. Gutt

Augu heimsbyggðarinnar voru á Anfield!


Það borguðu 52.679 áhorfendur sig inn á Anfield í gærkvöldi til að horfa á leik Liverpool og Manchester United. En fyrir utan þá sem voru á vellinum fylgdust milljónir manna úti um allan heim með rimmu risanna á Anfield.


Hermt er að 700 milljónir manna um allan heim hafi horft á leikinn í sjónvarpi. Það er sannarlega óhætt að segja að augu heimsbyggðarinnar hafi verið á Anfield í Liverpool. Leiknum sjálfum lauk auðvitað án marka og olli miklum vonbrigðum en það vantaði ekkert upp á áhuga knattspyrnuáhugamanna um víða veröld á leiknum!




  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan